Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt

Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
Í ár er sérstakt tilefni til hátíðarhalda en Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli. Af því tilefni bjóða Landsbankinn og TM til fjölskylduskemmtunar og tónleika við Landsbankann í Reykjastræti 6.
Fjör fyrir alla fjölskylduna

Dagskráin hefst kl. 13.30 þegar Lalli töframaður stígur á svið. Lalli kann svo sannarlega að heilla bæði unga sem aldna og má búast við töfrum, gleði og góðri stemningu.

Klukkan 14.30 stígur Gleðisveitin Hnokkar á svið og leikur hressandi sveiflutónlist fyrir gesti. Með í för verða dansarar frá Sveiflustöðinni sem halda uppi fjörinu og sýna gestum hvernig alvöru sveifla á að líta út. Við hvetjum gesti á öllum aldri að sjálfsögðu til að taka nokkur dansspor með.

Sólon og Dimma dúskur taka við kl. 15.30 og bjóða yngstu gestunum upp á skemmtilega stund fulla af tónlist, söng og dansi. Sólon er ofurhetja sem býr á Sólinni en ferðast til jarðarinnar til að skoða spennandi staði og fræða börnin. Dimma dúskur slæst í för með honum og því má sko bóka að það verður stuð og stemning!

Klukkan 16.30 stígur Emmsjé Gauti á svið og slær botninn í dagskrána með kraftmiklum tónleikum. Gauti hefur um árabil verið einn vinsælasti tónlistarmaður landsins og er þekktur fyrir líflega sviðsframkomu og lög sem allir ættu að kannast við. Það má því búast við frábærri stemningu þegar Emmsjé Gauti tekur við sviðinu og lokar dagskránni hjá Landsbankanum.
Dagskrá Landsbankans og TM
13.30 – Lalli töframaður
14.30 – Gleðisveitin Hnokkar og Sveiflustöðin
15.30 – Sólon og Dimma dúskur
16.30 – Emmsjé Gauti
Á svæðinu verður auk þess nóg annað um að vera fyrir yngstu gestina. Boðið verður upp á blöðrur, kandífloss, popp og fleira skemmtilegt. Sproti mætir að sjálfsögðu á svæðið og tekur þátt í fjörinu!
Við hlökkum til að sjá ykkur á Menningarnótt!









