Lok endurkaupatímabils 2026

Þann 25. febrúar 2026 birti Landsbankinn tilkynningu um að bankinn byðist til að kaupa hluti af hluthöfum á endurkaupatímabili sem stóð frá og með 2. mars 2026 til og með 13. mars 2026.
Á endurkaupatímabilinu keypti Landsbankinn samtals 4.594.709 eigin hluti á genginu 14,56, að heildarkaupverði 66.898.959 krónur.
Fyrir upphaf endurkaupa á tímabilinu átti Landsbankinn 385 milljónir eigin hluti. Að loknum endurkaupum á tímabilinu á bankinn 390 milljónir eigin hluti, sem nemur um 1,6% af útgefnu hlutafé bankans.
Endurkaup á tímabilinu gátu numið að hámarki samtals 48 milljónum hluta, eða sem nemur um 0,2% af útgefnu hlutafé.









