Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Affineva með Gul­legg­ið 2026 í hönd­un­um

Gulleggið 2026
27. febrúar 2026

Teymið Affineva stóð uppi sem sigurvegari í lokakeppni Gulleggsins 2026, stærstu og elstu frumkvöðlakeppni Íslands. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samfélags og menningar, afhenti teyminu vegleg peningaverðlaun fyrir hönd Landsbankans sem hefur um árabil verið aðalbakhjarl keppninnar.

Keppnin er haldin af KLAK – Icelandic Startups og hefur frá árinu 2008 verið mikilvægur stökkpallur fyrir frumkvöðla með verkefni á hugmyndastigi. Fjöldi sprotafyrirtækja sem nú hafa náð langt á innlendum og erlendum markaði stigu sín fyrstu skref á sviði Gulleggsins.

Í ár tók þátt fjölbreyttur hópur teyma sem spannar allt frá líftækni og sjálfbærri orku yfir í stafrænar lausnir og nýjar leiðir til að nýta gögn, tækni og íslenskar auðlindir og samkeppnin var því mikil.

1. sæti – Affineva

Hugmynd teymisins snýst um að þróa sértækar líftæknilausnir í greiningu og meðhöndlun sjúkdóma.

Hlaut teymið 2.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum.

Affineva hlaut einnig Frumukjarnann, líftækniverðlaun Gulleggsins, sem samanstóðu af 300.000 kr. þróunarstyrk, þriggja mánaða þróunar- og prófunartækifæri hjá Frumunni, aðgangi að rannsóknarsetri, handleiðslu sérfræðinga í líftækni og sérsmíðuðum verðlaunagrip frá Héðni. Gróska | Heimar veittu Affineva einnig aðgang að aðstöðu í Grósku, einum öflugasta suðupotti nýsköpunar á Íslandi, sem gerir teyminu kleift að þróa hugmynd sína í nálægð við önnur sprotafyrirtæki og fjárfesta.

2. sæti – IORDEN

Teymið kynnti lausn sem nýtir gervigreind og sjálfvirkni til að einfalda og bæta gæðaeftirlit hjá smærri matvælaframleiðendum.

Hlaut teymið 1.000.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum.

IORDEN hlaut einnig verðlaun Ungra frumkvöðla – Junior Achievement Iceland og fær tækifæri til að taka þátt í GEN-E nýsköpunarkeppninni í Riga í Lettlandi þar sem teymið mætir alþjóðlegum jafningjum og fjárfestum á stærra sviði.

3. sæti – Norrstone

Hugmynd teymisins snýst um stafrænt vistkerfi fyrir skartgripi, lausn sem byggir á stafrænum skartgripavottorðum á bálkakeðju sem auðveldar vottun, tryggingar, vildarkerfi og endursölu.

Hlaut teymið 500.000 kr. í verðlaun frá Landsbankanum.

Aukaverðlaun

KPMG veitti einu teymi aukaverðlaun í form 20 klukkustunda ráðgjafar sem nýtist við áætlunargerð, fjárfestakynningar, stofnun félags, skattamálum og öðrum lykilskrefum í uppbyggingu sprotafyrirtækis. Verðlaunin hlaut teymið E-Lísa.

Vinsælasta teymið í kosningu gesta og áhorfenda, Deadgroove Games, hlaut verðlaun Origo sem felst í ráðgjöf frá sérfræðingum fyrirtækisins, meðal annars í sölu- og markaðsmálum og þróun stafrænnar lausnar.

Heiðursegg Gulleggsins 2026 til Lavashow

Heiðursegg Gulleggsins 2026 var veitt fyrirtækinu Lavashow en hugmyndin á bak við fyrirtækið var meðal þeirra tíu hugmynda sem kepptu um Gulleggið árið 2016. Lavashow hefur á síðustu árum vakið mikla athygli fyrir að umbreyta náttúruöflunum í einstaka upplifun fyrir gesti, byggja upp sterkt vörumerki og skapa verðmæti bæði í ferðaþjónustu og skapandi greinum.

Með heiðursegginu er viðurkennt það mikla frumkvöðlastarf, úthald og hugrekki sem liggur að baki því að byggja upp fyrirtæki eins og Lavashow.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Hermann M. Þórisson, Friðrik Kristjánsson, Davíð Ólafsson, Jens Hilmar Wessman
28. ágúst 2026
Landsbankinn til ráðgjafar við sölu Alvogen
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Alvogen ehf., lyfjaheildsölu sem starfar á íslenskum markaði. Það var Orbital ehf. sem festi kaup á félaginu.
Eystra horn
27. ágúst 2026
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins 2026
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2026.
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.