Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn hef­ur sam­starf við Drift EA

7. janúar 2026

Landsbankinn og Drift EA hafa gert samstarfssamning sem miðar að því að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf á Íslandi með því að styrkja umgjörð, ráðgjöf og tengslanet fyrir frumkvöðla og sprotafyrirtæki.

Drift EA er kraftmikil miðstöð frumkvöðla og nýsköpunar þar sem samfélag, þekking og aðstaða skapa frjóan jarðveg fyrir hugmyndir til að þroskast og vaxa. Með samstarfinu tekur Landsbankinn virkan þátt í uppbyggingu öflugs atvinnulífs, einkum á Norðurlandi.

„Það skiptir okkur miklu máli að fá bakhjarla sem hafa skýra sýn á mikilvægi nýsköpunar fyrir samfélagið. Samstarfið við Landsbankann styrkir verulega stuðningsumhverfi frumkvöðla á svæðinu og eykur möguleika okkar til að tengja saman hugmyndir, fjármagn og þekkingu,“ segir Sesselja Ingibjörg Barðdal, framkvæmdastýra Drift EA.

Landsbankinn hefur um árabil lagt áherslu á að vera virkur þátttakandi í atvinnulífi og samfélagi um allt land.

„Sterkt frumkvöðlaumhverfi er lykilforsenda farsællar framtíðar á Íslandi. Með samstarfinu við Drift EA vill Landsbankinn styðja við nýsköpun með þekkingu, ráðgjöf og fjármálainnviðum sem hjálpa góðum hugmyndum að verða að raunverulegum fyrirtækjum sem skapa atvinnu og tækifæri. Þannig höfum við jákvæð áhrif á íslenskt samfélag,“ segir Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans.

Á myndinni eru í efri röð Kristján Þór Júlíusson og Kristján Vilhelmsson. Í neðri röð eru Arnar Páll Guðmundsson, Þorsteinn Már Baldvinsson, Lilja Björk Einarsdóttir, Sesselja Ingibjörg Barðdal og Árni Þór Þorbjörnsson.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Námsstyrkir 2026
29. maí 2026
Tíu milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 27. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjöunda sinn og var heildarupphæð þeirra hækkuð í 10 milljónir króna í ár. Alls bárust um 330 umsóknir.
Skólahreysti 2026
26. maí 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2026
Grunnskóli Húnaþings vestra sigraði Skólahreysti 2026 eftir spennandi úrslitakeppni sem fram fór að Varmá í Mosfellsbæ laugardaginn 23. maí. Keppnin var æsispennandi og skemmtileg en liðið stóð uppi sem sigurvegari með 60 stig eftir glæsilega frammistöðu í öllum greinum keppninnar.
Landsbankinn
21. maí 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi föstudaginn 22. maí 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi fimmtudaginn 28. maí 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Jón Þ. Grímsson
20. maí 2026
Jón Þór Grímsson nýr yfirlögfræðingur Landsbankans
Jón Þór Grímsson hefur verið ráðinn yfirlögfræðingur Landsbankans.
11. maí 2026
Opið fyrir umsóknir í Menningarnæturpott Landsbankans
Nú hefur verið opnað fyrir umsóknir um styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans 2026. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí. Menningarnæturpotturinn er samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og Landsbankans en bankinn hefur verið máttarstólpi hátíðarinnar frá upphafi.
17. apríl 2026
Hagkerfi í hægum vexti - hagspá til 2028
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Hagvöxtur verður hóflegur og einkum drifinn áfram af þjónustuútflutningi. Útlit er fyrir að verðbólga verði 4,8% í ár og sennilegt er að stýrivextir verði hækkaðir upp í 8,25% á þessu ári. Merki eru um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki.
1. apríl 2026
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 7. apríl nk.
26. mars 2026
Alfa Framtak kaupir Nóa Síríus
Alfa Framtak hefur samið við Orkla Snacks um kaup á öllu hlutafé í Nóa Síríus.
Samstarfssamningur
26. mars 2026
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta framlengja samstarfssamning
Landsbankinn og Félagsstofnun stúdenta (FS) hafa framlengt samstarfssamning sinn til næstu tveggja ára. Á samningstímanum mun Landsbankinn annast alla almenna bankaþjónustu og greiðslumiðlun fyrir rekstrareiningar FS. Bankinn mun einnig sjá um eignastýringu og ávöxtun á sjóðum FS og saman munu FS og Landsbankinn standa að ýmsum verkefnum og viðburðum.