Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn áfram að­al­bak­hjarl Gul­leggs­ins

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK og Hjalti Harðarson, forstöðumaður markaðsmála hjá Landsbankanum
5. janúar 2026

KLAK – Icelandic Startups og Landsbankinn hafa endurnýjað samstarf sitt um frumkvöðlakeppnina Gulleggið með undirritun nýs þriggja ára samnings. Með samningnum treystir Landsbankinn hlutverk sitt sem aðalbak­hjarl keppninnar enn frekar og undirstrikar langvarandi stuðning sinn við íslenska nýsköpun.

Landsbankinn hefur stutt Gulleggið samfellt frá stofnun keppninnar árið 2008 og hefur átt ríkan þátt í að skapa öflugan stökkpall fyrir frumkvöðla á hugmyndastigi. Í gegnum árin hafa fjölmörg farsæl sprotafyrirtæki stigið sín fyrstu skref í Gullegginu, þar á meðal Controlant, Meniga, PayAnalytics, Taktikal og Heima app.

Ásta Sóllilja Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri KLAK – Icelandic Startups, segir:

„Gulleggið er einstakur vettvangur fyrir fólk sem vill prófa hugmyndirnar sínar, læra af öðrum og stíga fyrstu skrefin í frumkvöðlastarfi. Að koma hugmynd á legg og byggja upp öflugt fyrirtæki er krefjandi ferli. Þar getur stuðningur á fyrstu stigum ráðið úrslitum. Landsbankinn skilur mikilvægi þess og hefur verið staðfastur bakhjarl Gulleggsins í nær tvo áratugi. Við erum afar þakklát fyrir stuðninginn og hlökkum til að halda þessu öfluga samstarfi áfram næstu árin.“

Hjalti Harðarson, forstöðumaður markaðsmála hjá Landsbankanum, segir:

„Landsbankinn hefur alla tíð lagt áherslu á að styðja við nýsköpun og frumkvöðlastarf sem skapar raunveruleg verðmæti fyrir samfélagið. Gulleggið er einstakur vettvangur þar sem hugmyndir fá að vaxa og taka á sig mynd. Við erum stolt af því að halda áfram að vera hluti af þeirri vegferð.“

Gulleggið fer fram árlega í upphafi árs og hefst nú í vikunni með hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans, sem fram fer í Landsbankanum í Reykjastræti dagana 9.-10. janúar. Í kjölfarið tekur við masterclass-námskeið þar sem þátttakendur þróa hugmyndir sínar áfram og undirbúa umsókn í lokakeppnina. Tíu teymi eru að lokum valin til þátttöku í lokakeppni Gulleggsins sem fer fram í Grósku þann 26. febrúar 2026.

Nánari upplýsingar um Gulleggið og skráningu má finna á vefsíðu keppninnar gulleggid.is

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.