Fréttir
Skert þjónusta vegna viðhalds aðfaranótt mánudags

3. október 2025
Vegna kerfisuppfærslu verður tiltekin þjónusta bankans ekki aðgengileg aðfaranótt mánudagsins 6. október 2025. Gert er ráð fyrir að þjónustan verði skert frá kl. 1.00 til um kl. 6.00 á mánudagsmorgun.
- Ekki verður hægt að framkvæma aðgerðir í netbanka og appi, s.s. greiða reikninga eða millifæra.
- Í hraðbönkum verður ekki mögulegt að framkvæma aðrar aðgerðir en að taka út peninga.
- Debetkort munu virka en staðan á reikningum sem eru tengdir við kortin mun ekki uppfærast.
- Engin áhrif verða á notkun kreditkorta.
Við vonum að þetta valdi viðskiptavinum ekki teljandi óþægindum.
Skert þjónusta við fyrirtæki og lögaðila
Lokað verður fyrir B2B tengingar viðskiptavina þar til viðhaldi lýkur.
Þú gætir einnig haft áhuga á

27. feb. 2026
Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.

27. feb. 2026
Landsbankinn hefur opnað fyrir umsóknir um námsstyrki fyrir árið 2026. Bankinn hefur stutt efnilegt námsfólk með styrkjum um 36 ára bil og í ár var ákveðið að hækka heildarupphæð námsstyrkjanna um tvær milljónir. Heildarupphæð námsstyrkja í ár er því 10 milljónir.

26. feb. 2026
Landsbankinn og Listahátíð í Reykjavík hafa skrifað undir samstarfssamning þess efnis að bankinn verði bakhjarl hátíðarinnar til ársins 2028. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skrifuðu undir samkomulagið.

18. feb. 2026
Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði Samskipta og menningar sem tekur til starfa í lok febrúar. Undir deildina falla samskiptateymi og Greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.

18. feb. 2026
Landsbankinn hefur endurnýjað samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, til fjögurra ára. Nýr samningur gildir út september 2029.

5. feb. 2026
Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung ehf. undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Seljandi er Skel fjárfestingafélag hf.

29. jan. 2026
Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.

16. jan. 2026
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að breyta fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu.

16. jan. 2026
Teymið Orden bar sigur úr býtum í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans og hlaut að launum 150.000 krónur í verðlaunafé og sæti í 10 liða lokakeppni Gulleggsins.

14. jan. 2026
Þorvaldur Jónsson listmálari gerði myndirnar sem prýða dagatal Landsbankans 2026. Þorvaldur mun opna sýningu á myndunum í Landsbankanum Reykjastræti 6 þriðjudaginn 20. janúar klukkan 15.00. Sýningin verður opin á afgreiðslutíma bankans og mun standa fram á vor.