Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Há­skóla­sjóð­ur Eim­skipa­fé­lags­ins 60 ára

Í dag, 11. nóvember, eru 60 ár liðin frá því að Háskólasjóður hf. Eimskipafélags Íslands var stofnaður. Sjóðurinn var stofnaður til minningar um þá Vestur-Íslendinga sem tóku þátt í stofnun Eimskipafélagsins.
Á mynd er stjórn sjóðsins: Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, Vigdís S. Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins,  Jón Þ. Sigurgeirsson, formaður bankaráðs Landsbankans, Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.  
11. nóvember 2024

Alls hafa 199 doktorsnemar við Háskóla Íslands hlotið styrk frá því að farið var að greiða styrki úr sjóðnum með reglubundnum hætti. Heildarúthlutun styrkja frá upphafi nemur rúmum 1,8 milljörðum króna, en þar af voru greiddar 500 milljónir króna til byggingar Háskólatorgs Háskóla Íslands á árunum 2006 og 2007. Sjóðurinn er stærsti styrktarsjóður landsins.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, segir:

„Háskólasjóður Eimskipafélagsins hefur valdið straumhvörfum í fjármögnun doktorsnáms á Íslandi. Þegar sjóðurinn hóf að styðja við doktorsnám árið 2006 tók rannsóknanám við HÍ stakkaskiptum þar sem skólanum var með framlagi sjóðsins kleift að leggja aukna áherslu á rannsóknir og nýsköpun. Í kjölfarið margfaldaðist fjöldi brautskráðra doktora og mælanlegur árangur skólans í rannsóknum og nýsköpun jókst verulega, eitthvað sem skiptir íslenskt samfélag verulegu máli. Við þessa breytingu má því með sanni segja að Háskóli Íslands hafi orðið fullburða rannsóknaháskóli. Til viðbótar má nefna afar mikilvægan stuðning sjóðsins við byggingu Háskólatorgs. Tilkoma Háskólatorgs gerbreytti háskólasvæðinu til hins betra, en enginn sambærilegur miðpunktur var þar til staðar áður en torgið kom. Háskólatorg er hjarta háskólasvæðisins og nú er ekki hægt að hugsa sér HÍ án þess.“

Það var Grettir Eggertsson sem beitti sér fyrir stofnun sjóðsins til minningar um alla þá Vestur-Íslendinga sem hlut áttu að stofnun Eimskipafélagsins. Faðir Grettis, Árni Eggertsson, hafði átt stóran hlut í þátttöku Vestur-Íslendinga í stofnun Eimskipafélagsins 1914. Hugmynd Grettis var að í ljósi breyttra aðstæðna skyldi unnið að því að allt hlutafé Vestur-Íslendinga í Eimskipafélaginu kæmi heim til Íslands, styddi við starfsemi félagsins en gagnaðist jafnframt góðu málefni. Málefnið sem hann valdi var „að stuðla að velgengni Háskóla Íslands, svo og að styrkja efnilega stúdenta til náms við Háskólann eftir ákvörðun háskólaráðs“, eins og segir í skipulagsskrá sjóðsins sem staðfest var af forseta Íslands 11. nóvember 1964. Af þessu markmiði dró sjóðurinn nafn sitt, Háskólasjóður hf. Eimskipafélags Íslands.

Á mynd er stjórn sjóðsins: Vilhelm Már Þorsteinsson, forstjóri Eimskips, Vigdís S. Hrafnkelsdóttir, framkvæmdastjóri sjóðsins, Jón Þ. Sigurgeirsson, formaður bankaráðs Landsbankans, Lilja B. Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans og Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands.  

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.