Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn gef­ur út græn skulda­bréf fyr­ir 300 millj­ón evr­ur

Græni hryggur
30. september 2024

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Um er að ræða fimmtu grænu skuldabréfaútgáfu bankans í evrum. Skuldabréfin bera 3,75% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 155 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

Heildareftirspurn nam yfir einum milljarði evra frá yfir eitt hundrað fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma Landsbankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 8. október 2024.

Umsjónaraðilar voru ABN AMRO Bank, J.P. Morgan, Natixis og Nomura.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.