Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn styrk­ir Ljóns­hjarta í nafni Framúrsk­ar­andi fyr­ir­tækja

Ljónshjarta
31. október 2023 - Landsbankinn

Líkt og undanfarin ár veitir Landsbankinn styrki til góðs málefnis í nafni allra þeirra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki. Að þessu sinni rennur styrkurinn, fjórar milljónir króna, til Ljónshjarta.

Alls hlutu 1.006 fyrirtæki viðurkenningu sem Framúrskarandi fyrirtæki 2023.

Ljónshjarta eru samtök til stuðnings yngra fólki sem misst hefur maka og börnum þeirra. Makamissir í blóma lífsins er eitt mesta áfall sem hægt er að verða fyrir á lífsleiðinni. Það tekur mjög á að vera í djúpri sorg og sinna á sama tíma börnum og heimili. Því er mikilvægt að geta fengið aðstoð við að átta sig á hvernig ráðlegast er að gera hlutina og finna á einum stað upplýsingar um réttindi sín í kerfinu og leiðir í sorgarvinnu fullorðinna og barna. Síðast en ekki síst finnst flestum mjög hjálplegt að komast í kynni við og hitta fólk í sömu sporum, finna skilning og stuðning hjá þeim sem þekkja af eigin reynslu hvað við er að etja.

Markmið samtakanna er að styðja við bakið á yngra fólki eftir makamissi og vera vettvangur þar sem fólk getur hjálpað hvert öðru í sorg. Starfið felst meðal annars í að halda úti heimasíðu með ýmis konar fræðsluefni og efna til fyrirlestra og samverustunda þar sem fullorðnir, unglingar og yngri börn hittast og eiga góða stund saman.

Ljónshjarta

Framúrskarandi fyrirtæki 2023

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.