Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Fyr­ir­tækja­ráð­gjöf bank­ans um­sjón­ar­að­ili við flutn­ing Amar­oq á að­al­mark­að

Grænland
21. september 2023

Amaroq Minerals, með auðkennið „AMRQ“, hefur nú verið skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Auk skráningar á Aðalmarkað Nasdaq Iceland eru hlutabréf Amaroq skráð á markað í Kanada (TSX-V) og London (AIM). Samhliða flutningnum yfir á Aðalmarkað Nasdaq Iceland hefur félagið verið afskráð af First North Iceland.

Amaroq Minerals er fyrsta skráða félag sinnar tegundar á Íslandi. Félagið leggur megináherslu á leit að gulli og öðrum verðmætum málmum og hefur víðtækar rannsóknar- og vinnsluheimildir á Grænlandi, þar sem finna má gull, kopar, nikkel og aðra málma sem eru nauðsynlegir fyrir orkuskipti framtíðarinnar.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með skráningarferlinu og óskum við starfsfólki og hluthöfum Amaroq til hamingju með skráninguna.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.