Landsbankinn breytir vöxtum
Í kjölfar nýlegrar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands verða gerðar breytingar óverðtryggðum vöxtum Landsbankans. Vaxtabreytingarnar taka jafnframt mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans. Helstu breytingar eru eftirfarandi:
Innlánavextir
- Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um 1,25 prósentustig.
- Viðskiptavinir fá 8,25% vexti þegar þeir spara í appinu.
- Vextir á óverðtryggðum Fasteignagrunni verða 8,90%.
- Vextir almennra veltureikninga hækka um 0,25 prósentustig.
Útlánavextir
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 1,25 prósentustig og verða 10,25%.
- Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána til 36 mánaða hækka um 0,50 prósentustig og fastir vextir nýrra íbúðalána til 60 mánaða hækka um 0,60 prósentustig.
- Kjörvextir á óverðtryggðum lánum og yfirdráttarlánum hækka um 1,25 prósentustig.
Ný vaxtatafla tekur gildi fimmtudaginn 1. júní 2023. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
Hver eru áhrifin á lánið mitt?
Við vekjum athygli á fræðslugrein á vef bankans þar sem fjallað er um áhrif vaxtahækkana á lán. Ef lán (neytendalán eða fasteignalán til neytenda) er með breytilega vexti taka breytingarnar gildi 30 dögum eftir að tilkynnt er um breytinguna. Vextir lána með fasta vexti breytast ekki á meðan á fastvaxtatímanum stendur.