Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Al­votech flyt­ur sig yfir á Að­al­mark­að Nas­daq Ice­land

Höfuðstöðvar Alvotech
8. desember 2022

Líftæknifyrirtækið Alvotech hefur nú flutt hlutabréf félagsins með auðkennið „ALVO“ af First North Iceland yfir á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Frá því í júní 2022 hafa hlutabréf Alvotech bæði verið skráð  á First North markaðinn á Íslandi og Nasdaq hlutabréfamarkaðinn  í Bandaríkjunum. Með flutningnum hafa hlutabréf félagsins verið afskráð af First North og í kjölfarið skráð til viðskipta á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Hlutabréf félagsins eru því bæði skráð á Aðalmarkað Nasdaq Iceland og Nasdaq hlutabréfamarkaðinn  í Bandaríkjunum.

Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ferli við flutning hlutabréfanna yfir á Aðalmarkað Nasdaq Iceland.

Við óskum hluthöfum og starfsfólki Alvotech til hamingju með flutninginn.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.