Fréttir

Lands­bréf skila góð­um ár­angri á fyrri hluta árs­ins

24. ágúst 2022 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2022.

Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður af rekstri Landsbréfa var tæpar 448 milljónir króna á fyrri hluta ársins samanborið við 602 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.  
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.059 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 1.361 milljón króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var 3.417 milljónir króna samanborið við 5.969 milljónir króna í árslok 2021, en félagið greiddi Landsbankanum 3 milljarða arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 76,95% við lok tímabilsins.
  • Alls voru um 20 þúsund hlutdeildarskírteinishafar í sjóðum Landsbréfa og voru eignir í eigna- og sjóðastýringu samtals um 457 milljarðar króna í lok tímabils.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu. Hagnaður var 448 m. kr. sem er nokkuð lægri fjárhæð en árið áður sem skýrist af miklum viðsnúningi á hreinum fjármunatekjum á milli tímabila en erfiðar markaðsaðstæður á verðbréfamörkuðum á fyrri árshelmingi lituðu afkomuna að þessu sinni. Umsýslu- og árangurtengdar þóknanir hækka um tæplega 15% á milli ára og rekstrargjöld lækka töluvert. Grunnrekstur félagsins er því áfram að eflast . Í maímánuði greiddi félagið Landsbankanum eiganda félagsins 3 milljarða arðgreiðslu.

Töluvert umrót hefur verið á mörkuðum á árinu. Á sama tíma og áhrif Covid-heimsfaraldursins eru að fjara út hafa styrjaldarátök í Úkraínu og miklar verðhækkanir á hrávörumörkuðum haft mikil áhrif á fjármálamarkaði. Verðbólga hefur vaxið hratt síðustu mánuði og gildir það jafnt um Ísland og önnur lönd bæði austan hafs og vestan. Það eru því krefjandi tímar á eignamörkuðum um þessar mundir og skiptir miklu máli að vandað sé til verka við ávöxtun fjármuna. Það er verkefni sem starfsfólk Landsbréfa tekur alvarlega, enda hafa Landsbréf um árabil skilað fjárfestum í sjóðum félagsins góðri ávöxtun og reynslumikið starfsfólk félagsins leggur sig fram við að standa undir því trausti sem vaxandi fjöldi sjóðfélaga sýnir Landsbréfum.

Landsbréf hafa um árabil verið í fararbroddi á Íslandi sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki. Félagið rekur fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.“

Landsbréf - Árshlutareikningur fyrri árshelmings 2022 (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
14. júní 2024
Do logowania można używać aplikacji Auðkenni
Zwracamy uwagę na fakt, iż do logowania można używać aplikacji Auðkenni, jaki i do identyfikacji w bankowości elektronicznej i aplikacji bankowej. Ponadto niebawem będzie można składać kwalifikowane podpisy elektroniczne. Może to być szczególnie przydatne, gdy będziesz miał(a) dostęp do Internetu, ale nie będziesz miał(a) zasięgu sieci telefonicznej lub w przypadku zagranicznego numeru telefonu komórkowego.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur