Fréttir

Út­hlutað úr Menn­ing­ar­næt­urpotti Lands­bank­ans og Reykja­vík­ur­borg­ar

21. júlí 2022

Alls fengu 22 verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar að þessu sinni.

Það var starfshópur á vegum Reykjavíkurborgar sem valdi styrkþegana en alls bárust 69 umsóknir. Verkefnin 22 sem hlutu styrk eru afar fjölbreytt og felast m.a. í því að færa borgarbúum myndlist, listgjörninga og tónlist. Styrkirnir sem er veittir eru á bilinu 100-300 þúsund krónur og samtals eru veittir styrkir fyrir fjóra og hálfa milljón króna. Hægt verður að sjá afrakstur þeirra á Menningarnótt 20. ágúst.

Menningarnæturpottur 2022

Opnunarhátíð King og Bong - King og Bong

Samsýning ungs myndlistarfólks, gjörningadagskrá, tónleikahátíð og fleira á Laugavegi 27. Rýmið verður fyllt af lífi með myndlistarsýningu og fjölbreyttum gjörningum frá grasrót listasenunnar í Reykjavík yfir daginn. Listasmiðjur verða hluti af gjörningaröðinni og eru opnar fyrir alla þá sem vilja. Dagskráin endar svo í tónleikahátíð um kvöldið. King og Bong er lifandi en jafnframt tifandi tímasprengja sem vill ekki springa. Markmið King og Bong er að gera meira, meira og meira!!

Einnar nætur gaman - Laumulistasamsteypan

Gjörningadagskrá með 18 alþjóðlegum listamönnum. Laumulistasamsteypan er félagasamtök og gestavinnustofa sem hittist árlega í Hrísey í Eyjafirði og vinnur að skapandi verkefni. Á Menningarnótt sýnir hópurinn í OPEN sem er vinnurými listamanna við höfnina í Reykjavík á Granda og flæðir dagskráin út fyrir rýmið. Dagskráin verður fjölbreytt blanda af ýmiskonar uppákomum Búast má við raftónlist, lip-sync gjörningum, sérhönnuðum búningum og myndböndum.

Spunamarathon - Improv Ísland

Hjá Improv Ísland er ekkert ákveðið fyrirfram, allt getur gerst og er hver sýning æfingaferli, frumsýning og lokasýning. Spunamaraþon þetta hefur slegið í gegn á hverju ári og vakið þvílíka athygli. Það verður ókeypis inn á hálftíma fresti verður hleypt inn og út úr salnum. Spunaleikarar munu spinna ólík spunaform eins og Haraldinn, söngleiki, mónósenur og Martröð leikarans.

Öll niðurföll renna til sjávar - Plastlaus september í samstarfi við Landvernd og Operation Creed

Búið ykkur undir endurkomu þverfaglega lista- og hönnunarhópsins Operation Creed. Hópurinn mun beina athygli gesta og gangandi að niðurföllum miðbæjarins með gáskafullum krítarverkum og fá menningarnæturgesti, börn sérstaklega velkomin, í lið með sér að myndskreyta niðurföll með plastlausum krítum. Verkefnið minnir okkur á með kímni og litagleði að allt, þ. á m. plast, sem rennur niður í niðurföllin, endar úti í sjó og mengar þessa lífæð okkar.

Skúrinn 2022 - Íbúar Óðinsgötu 26

Í 103 ára gömlu húsi við Óðinsgötu 26 búa arkitekt, myndlistarkona, tónlistarmaður og leikmyndahönnuður. Þangað venur skapandi fólk komur sína nú verður blásið til veislu í garðinum. Þannig er hægt að deila með nágrönnum og almenningi afrakstri þeirrar skapandi vinnu sem fram hefur farið innandyra í vetur. Svið verður byggt ofan á lágreistum skúr sem tilheyrir lóðinni og geta gestir notið tónlistarinnar í grasinu fyrir neðan.

Gallery Port x Húrra Reykjavík x Mikki refur

Útitónleikar og myndlistarsýning í verslun Húrra Reykjavík, í samstarfi við Gallery Port. Átta ungir myndlistarmenn sýna ný prentverk og samhliða því verða haldnir tónleikar. Sýningin og útitónleikarnir eru liður í því að kynna myndlist fyrir ungu fólki í Reykjavík. Fimm tónlistaratriði og plötusnúðar spila á milli atriða. Kaffi- og vínbarinn Mikki refur, einnig staðsettur við portið, verður með útisvæði fyrir gesti og sér um veitingar.

Afmælishátíð Norræna félagsins - Ung norræn 100

Í tilefni af 100 ára afmæli Norræna félagsins á Íslandi, þá hefur Ung norræn - ungmennadeild Norræna félagsins útitónleika á Óðinstorgi, Tónleikarnir eru miðaðir að ungu fólki og ungt listafólk í fyrirrúmi auk þess sem norræn menning og samstarf verða áberandi.

Garðveisla í gamla Hressógarðinum - LEMMY

LEMMY hefur lagt mikið púður í að opna á ný gamla Hressógarðinn fyrir menningarstarfsemi. Á Menningarnótt er gestum og gangandi boðið að koma í garðinn. Dagskráin mun vera yfir daginn og fram á kvöld í garðinum og þar mun ungt og efnilegt tónlistar fólk sem er að hasla sér völl ásamt vinsælum popp og rokk sveitum.

Jazzveisla á Menningarnótt - Reykjavík Record Store og Skuggabaldur

Tónleikar með djasslistamönnum sem hafa gefið út plötur undir merkjum Reykjavík Record Shop. Má þar nefna Sigmar Þór Matthíasson og hljómsveit, Magnús Trygvason Eliassen, Hróðmar Sigurðsson, Ingibjörgu Elsu Turchi auk Tuma Árnasonar, Þorgríms Jónssonar, Magnúsar Jóhanns og Skúla Sverrisson og tríósins Hist og sem öll hafa hlotið tilnefningar og verðlaun fyrir plötur sínar. Góð skemmtun og algjör veisla fyrir djassáhugafólk.

Útitónleikar í Kexportinu

KEX Hostel býður upp á útitónleika í KEX portinu á Menningarnótt. Listamenn byrja að spila klukkan 14.00 og verður dagskrá til 21.00.  Frábært tækifæri til að kynnast grasrótinni í íslenskri tónlist ásamt þekktari listamönnum.

Ævintýraheimur Hugleiks við Reykjavíkurtjörn - Leikfélagið Hugleikur

Áhugaleikfélagið Hugleikur setur upp Ævintýraheim fyrir alla fjölskylduna við Reykjavíkurtjörn á Menningarnótt. Settir verða upp frumsamdir leikþættir og ævintýralegar verur munu taka á móti gestum. Á milli leikþátta gefst gestum kostur á að prófa leikhúsförðun og klæða sig upp í nokkra af fjölmörgum búningum okkar og smella af sér mynd í myndabás sem við setjum upp á staðnum. Hugleikur á nærri því 40 ára sögu að baki og hlakkar til bjóða gestum að taka þátt í henni með sér.

Fjölskyldu þrauta samvera - Bandalag íslenskra skáta

Opinn fjölskylduskátafundur fyrir allar fjölskyldur. Fjörið mun samanstanda af leikjum og þrautum sem fjölskyldan fer saman í gegnum. Markmiðið er að forráðafólk og börnin verji tíma saman í náttúrunni og geri eitthvað jákvætt og uppbyggilegt saman. Börnin njóta þess sérstaklega að leiða forráðafólkið í gegnum verkefnin, fjölskyldurnar spreyta sig á ýmsum þrautum í sameiningu og njóta samvinnu og samveru.

Kliður í Listasafni Íslands

Kórinn Kliður skapar töfrandi upplifun með söng sínum fyrir gesti Listasafns Íslands á Menningarnótt. Viðburðurinn mun kallast á við myndlistarsýninguna Liðamót þar sem sýnd eru verk Margrétar H. Blöndal en hún er meðlimur í kórnum. Flutt verða vönduð verk eftir meðlimi kórsins, bæði ný og eldri, sem spanna stóran skala frá fínofnum kórverkum til spuna, auk sönglaga frá söngvaskáldum kórsins. Kliður hefur getið sér gott orð fyrir spennandi uppákomur og komið fram hér heima og erlendis.

Ásmundarsalur dreifir úr sér á Menningarnótt

Á Menningarnótt mun menningarstarfsemi Ásmundarsalar vaxa út í garð.  Gestum er boðið uppá lifandi tónlist og listamönnum gefið færi á að færa verk sín út í garð. Listavettvangurinn er færður út og fleirum boðið að ganga inn í garðinn og njóta myndlistar og tónlistar í garðinum á menningarnótt.

Festival á Fiskislóð - Bjórland

Festival á milli húsanna í stóru porti á milli húsanna á Fiskislóð 24 - 26 þar sem fyrirtækin á Granda  skapa skemmtilega stemmningu fyrir gesti festivalsins. Gestir geta notið tónlistar og ýmislegs fleira.

Leikið á ljós - Sölvi Viggósson Dýrfjörð

Hér fær tónlistin nýja vídd. Margvíslegir lampar og ljós verða hengd í loftið og á grind. Tónlistarmenn mæta á svæðið og flytja fallega tónlist þar sem hver tónn er tengdur ákveðnu ljósi, þannig tendrast mismunandi ljós eftir því hvaða tónar eða hljómar eru notaðir, hvort sem um er að ræða einstaka hljóðfæri, söng eða samspil. Með þessu öðlast flutningurinn alveg nýja vídd. Auk þess að vekja hljóð sem gleður eyrun, tendrast ljós sem gleðja augu, þannig er spilað á mörg skynfæri. Það verða ekki bara lærðir listamenn sem flytja tónlist, heldur fá gestir og gangandi líka að spreyta sig og leika á ljósin.

ListaBreytiLeikar - Vínstúkan Tíu Sopar

Viðburðurinn ListBreytiLeikar hefur það markmið að gefa fjölbreyttum listamönnum pláss og fagna fallegu tjáningarfrelsi sem kemur í mörgum myndum. Fjölbreytnin ræður ríkjum og göngugatan breytist í svið fyrir gesti og gangandi.

Hljómsveitin Brek - Fisch Pop-up tónleikar á Vesturgötu

Hljómsveitin Brek ætlar sér að halda þrjá hálftíma langa tónleika fyrir utan veitingastaðinn Kaffi Rosenberg á Vesturgötu 3. Á tónleikunum mun hljómsveitin leika lög af plötu sinni sem hlaut einmitt íslensku tónlistarverðlaunin sem plata ársins í flokki þjóðlaga- og heimstónlistar á árinu. Sveitin sérhæfir sig í flutningi órafmagnaðrar þjóðlagatónlistar.

Róttæklingarnir!

Barmmerkjasmiðja fyrir unga róttæklinga! Samkvæmt 12. grein barnasáttmálans eiga börn rétt á því að tjá sig frjálslega um öll málefni sem hafa áhrif á líf þeirra og fullorðnir eiga að hlusta og taka mark á þeim. Hér gefst ungu baráttufólki tækifæri til að hanna og búa sér til barmmerki sem styður hvaða málefni sem er sem brennur á því! Boðið verður upp á kaffi og með því fyrir fullorðna fólkið á meðan það bíður eftir róttæklingunum sínum.

Listin að ganga á línu - Slackline Iceland

Slackline er eitt skemmtilegasta sumarsport sem sögur fara af. Settar verða upp 3-5 línur, mislangar og misháar, fyrir gesti og gangandi að spreyta sig á og er gestum kennt að ganga eftir línunum. Hvað getið þið tekið mörg skref á línunni án þess að missa jafnvægið?

Bókmenntahátíð alþýðunnar- Kanínuholan-fornbókaveröld

Kanínuholan-fornbókaveröld heldur upp á tveggja ára afmæli sitt með Bókmenntahátíð alþýðunnar. Kanínuholan er bílskúr í holtunum og þar er að finna góðar bækur á fjölmörgum tungumálum. Á hátíðinni, verður boðið upp á léttar veitingar, límónaði, sitthvað bakkelsi og kaffi. Viðburðir á Bókmenntahátíð alþýðunnar verða af ýmsu tagi: Fornbókamarkaður og kynning á Kanínuholunni, upplestur, höfundakynning, kynning á pólsk/íslenskum ljóðum og höfundum, andlitsmálning fyrir fullorðna og börn. Doktor Arnar Eggert DJ spilar alþjóðlega bókmenntamúsík.

Opinn saumó - Hússtjórnarskólinn í Reykjavík

Hússtjórnarskólinn í Reykjavík opnar dyr skólans að Sólvallagötu 12 á Menningarnótt. Fólki er boðið að koma með handavinnuna sína með sér, fá sér sæti í stássstofum skólans og gæða sér á nýbökuðum vöfflum á meðan það drekkur heitt kaffi eða kakó. Á meðan hlýðir mannskapurinn á ljúfa píanótónlist og söng.

Á myndinni eru meðlimir Dansverkstæðisins og Dansgarðsins að flytja verkið The Practice Performed við opnun Menningarnætur 2019 á Hagatorgi.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur