Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Nýr for­stöðu­mað­ur Þjón­ustu­vers

29. júní 2022

Gróa Helga Eggertsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Þjónustuvers Landsbankans.

Gróa er með B.Sc.-próf í verkfræði frá Háskóla Íslands og með meistaragráðu í verkfræði frá Tækniháskólanum í Danmörku (DTU), með áherslu á verkefnastýringu. Hún er einnig með MBA-gráðu frá Háskólanum í Reykjavík.

Gróa var áður forstöðumaður Tækniþjónustu Nova. Þar áður var hún framkvæmdastjóri Þjónustusviðs Þjóðskrár og veitti Kortadeild N1 forstöðu. Hún hóf starfsferil sinn að námi loknu hjá Vodafone og gegndi þar m.a. starfi forstöðumanns Notendakerfa á Tæknisviði og starfi forstöðumanns Þjónustuvers.

Einstaklingar og fyrirtæki sem eru í viðskiptum við Landsbankann fá fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf hjá Þjónustuverinu, í síma, í gegnum tölvupóst og netspjall. Þjónustuverið er með starfstöðvar í Reykjavík og á Akureyri og einnig er starfsfólk á Ísafirði og í Þorlákshöfn.

Þú gætir einnig haft áhuga á
16. nóv. 2026
Hugarafl hlýtur 4 milljóna króna styrk
Landsbankinn veitti Hugarafli fjögurra milljóna króna styrk í nafni allra fyrirtækja sem hlutu viðurkenningu Creditinfo sem Framúrskarandi fyrirtæki árið 2026. Líkt og undanfarin ár veitir bankinn styrk til góðs málefnis í nafni fyrirtækjanna. 
13. nóv. 2026
Bláa Lónið hefur lokið hlutafjárútboði
Almennu hlutafjárútboði Bláa Lónsins hf. lauk kl. 16:00 þann 13. nóvember. Alls bárust tæplega 4 þúsund áskriftir að andvirði um 15,3 ma. kr.
10. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. er hafið. Þann 5. nóvember 2026 birti Bláa Lónið lýsingu sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsinu. Tekið verður við áskriftum á vef bankans frá kl. 10:00 þriðjudaginn 10. nóvember 2026 til kl. 16:00 föstudaginn 13. nóvember 2026.
10. nóv. 2026
Nýr og endurbættur netbanki einstaklinga
Við höfum gefið út nýjan og endurbættan netbanka einstaklinga. Þar er enn einfaldara og þægilegra fyrir viðskiptavini að fylgjast með fjármálum sínum og sinna bankaerindum.
9. nóv. 2026
Landsbankinn og Brutto einfalda fjármál fyrirtækja
Fyrirtækjaeigendur geta nú sinnt fjármálum og haldið utan um daglegan rekstur á einum stað með Brutto, nýju rekstrarkerfi fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki.
6. nóv. 2026
Opinn kynningarfundur um hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Bláa Lónið hf. og Landsbankinn hf. boða til opins kynningarfundar, þriðjudaginn 10. nóvember kl. 10, í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins og umsókn um töku allra hluta félagsins til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland.
6. nóv. 2026
Almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf.
Í tengslum við almennt hlutafjárútboð Bláa Lónsins hf. („félagið“) og umsókn um töku allra hluta þess til viðskipta á Aðalmarkaði Nasdaq Iceland, hefur félagið birt lýsingu sem dagsett er 5. nóvember 2026, sem samanstendur af samantekt, útgefandalýsingu og verðbréfalýsingu.
Austurbakki
29. okt. 2026
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2026
Hagnaður Landsbankans á fyrstu níu mánuðum ársins 2026 nam 33,1 milljarði króna eftir skatta, samanborið við 29,5 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 11,1 milljarður króna. Arðsemi eiginfjár var 13,3% samanborið við 12,2% á sama tímabili árið áður.
28. okt. 2026
Fjölmenni og líflegar umræður á hagspárfundi
Fullt hús var á Kjarval miðvikudaginn 21. október þegar Greiningardeild Landsbankans kynnti hagspá sína til ársins 2029.
23. okt. 2026
Ella Gränz ráðin mannauðsstjóri Landsbankans
Elín (Ella) Gränz hefur verið ráðin mannauðsstjóri Landsbankans og mun hefja störf í upphafi nýs árs.