Fréttir
Hugaðu að kortaheimildinni um næstu mánaðamót
Margir greiða reikninga og kanna stöðuna í bankanum um mánaðamót. Næstu mánaðamót eru á páskum, við minnum því á að í Landsbankaappinu, netbankanum og í hraðbönkum má leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.

25. mars 2021
Við bendum á að kreditkortin verða ekki skuldfærð fyrr en 6. apríl, nokkrum dögum seinna en venjan er. Þeir viðskiptavinir sem þurfa aukið svigrúm á heimildina sína vegna þessa, geta leyst það með ýmsum leiðum í appinu. Það er einfalt að leggja inn á kortið í appinu, hækka heimildina og greiða kreditkortareikninginn fyrir skuldfærsludaginn. Einnig er hægt að dreifa kreditkortareikningnum hvenær sem er í netbankanum og appinu.
Gleðilega páska!
Þú gætir einnig haft áhuga á

21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.

19. ágúst 2026
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.

18. ágúst 2026
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.

5. ágúst 2026
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.

4. ágúst 2026
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.

31. júlí 2026
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.

24. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.

8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.

7. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.

7. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.