Fréttir

Við leys­um úr mál­un­um í síma og á net­inu

Öllum útibúum Landsbankans hefur verið lokað tímabundið vegna hertra samkomutakmarkana stjórnvalda sem gilda frá og með 31. október. Við hvetjum viðskiptavini til að nota Landsbankaappið, netbankann og hraðbankana eins og hægt er en þannig má leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.
30. október 2020 - Landsbankinn

Öllum útibúum Landsbankans hefur verið lokað tímabundið vegna hertra samkomutakmarkana stjórnvalda sem gilda frá og með 31. október. Við hvetjum viðskiptavini til að nota Landsbankaappið, netbankann og hraðbankana eins og hægt er en þannig má leysa fjölmörg erindi á einfaldan og fljótlegan hátt.

Lokunin nær einnig til fyrirtækjaþjónustu Landsbankans og Bíla- og tækjafjármögnunar.

Þótt útibúin séu lokuð erum við áfram til staðar til að leysa úr málunum. Þú getur haft samband við okkur í síma 410 4000, spjallað við okkur á netspjallinu eða sent okkur tölvupóst með erindinu. Ef þig vantar ráðgjöf getur þú pantað símtal frá ráðgjafa á landsbankinn.is. Við hringjum síðan í þig á þeim tíma sem þú pantar. Vakin er athygli á að símtöl bankans geta verið hljóðrituð.

  • Hægt er að annast flest bankaviðskipti í Landsbankaappinu, netbankanum og á vef bankans.
  • Þjónustuverið er opið alla virka daga frá klukkan 9-16.
  • Netspjallið er opið alla virka daga frá klukkan 9-17.
  • Til að panta símtal frá ráðgjafa getur þú fyllt út pöntunarform á landsbankinn.is eða haft samband við Þjónustuverið.
  • Hægt er að hafa samband við Þjónustuver Landsbankans í síma 410 4000, með því að senda póst á netfangið landsbankinn@landsbankinn.is eða í netspjallinu á vef bankans.
  • Við hvetjum viðskiptavini sem þurfa aðstoð eða eru óvanir að nýta sér rafrænar lausnir til að hafa samband við Þjónustuverið í síma 410 4000.
  • Hægt er að hafa samband við Þjónustuver fyrirtækja með því að hringja í 410 5000 eða senda tölvupóst í fyrirtaeki@landsbankinn.is.
  • Hraðbankar Landsbankans eru flestir aðgengilegir allan sólarhringinn. Hægt er að sjá staðsetningu og fjarlægð í næsta hraðbanka í Landsbankaappinu. Í hraðbönkum er m.a. hægt að taka út og leggja inn reiðufé og greiða reikninga.

Nánari upplýsingar

Nýttu þér bankaþjónustu í símanum og á netinu

Polski

Załatwiamy sprawy drogą telefoniczną i internetową

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur