Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn fær góða um­sögn um sam­fé­lags­ábyrgð hjá Sustaina­lytics

Landsbankinn hefur fengið UFS-áhættumat frá Sustainalytics sem snýr að samfélagsábyrgð bankans. Landsbankinn fékk mjög góða einkunn og er bankinn í 6. sæti af 376 bönkum sem Sustainalytics hefur mælt í Evrópu.
18. nóvember 2019

Landsbankinn hefur fengið UFS-áhættumat frá Sustainalytics sem snýr að samfélagsábyrgð bankans, nánar tiltekið umhverfis- og félagslegum þáttum og stjórnarháttum (UFS-þáttum). Landsbankinn fékk mjög góða einkunn og er bankinn í 6. sæti af 376 bönkum sem Sustainalytics hefur mælt í Evrópu. Landsbankinn fékk 17,5 stig á 100 stiga skala sem þýðir að lítil áhætta er talin vera á að bankinn verði fyrir fjárhagslegum áhrifum vegna UFS-þátta.

Krafan um úttekt ytri aðila á UFS-þáttum fyrirtækja hefur aukist undanfarin ár og vilja ýmsir fjárfestar að það liggi fyrir óháð mat þriðja aðila á samfélagsábyrgð bankans. UFS-þættir (e. Environmental, Social, Governance, ESG) eru viðmið sem snúa m.a. að því hvernig fyrirtæki gætir að umhverfislegum áhrifum starfsemi sinnar og hvernig fyrirtæki kemur fram við starfsfólk sitt, birgja, viðskiptavini og samfélagið sem það starfar í.

Sustainalytics er alþjóðlegt mats- og greiningarfyrirtæki sem aðstoðar fjárfesta, útgefendur og fyrirtæki um allan heim við að innleiða aðferðafræði ábyrgra fjárfestinga og sjálfbærra fjármálagerninga.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans: „Þetta er góð niðurstaða fyrir Landsbankann en við höfum lagt mikla vinnu í samfélagsábyrgð á undanförnum árum. Viðskiptavinir okkar eru sífellt meðvitaðri um þau tækifæri sem felast í samfélagsábyrgð fyrirtækja og vilja vinna með banka sem stendur sig vel. Með úttekt Sustainalytics fáum við staðfestingu á góðri stöðu bankans og betri yfirsýn á stöðu hans í alþjóðlegum samanburði.“

Nánar um áhættumat Sustainalytics

UFS-áhættumat metur áhættu og áhættustýringu fyrirtækis í tengslum við UFS-þætti sem taldir eru mikilvægir fyrir hvert fyrirtæki út frá undirliggjandi atvinnugreinum. Aðferðafræðin metur umfang mikilvægrar UFS-áhættu sem áhættustýring fyrirtækis nær ekki til. Því meiri áhætta sem fellur utan áhættustýringarramma fyrirtækisins, því hærra er UFS-áhættumatið.

UFS áhættumat Sustainalytics

Þú gætir einnig haft áhuga á
Reykjastræti
19. júní 2025
Útibú TM er flutt í Reykjastræti 6
Útibú TM á höfuðborgarsvæðinu flutti í dag, 19. júní 2025, í útibú Landsbankans í Reykjastræti 6 í miðborg Reykjavíkur. Þar tekur starfsfólk TM og bankans vel á móti viðskiptavinum.
Yayland
4. júní 2025
YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag – Yayland
Fjártæknifyrirtækið YAY og Landsbankinn hafa stofnað nýtt félag, Yayland ehf., sem mun sérhæfa sig í þróun, sölu, útgáfu og rekstri á stafrænum og hefðbundnum inneignarkortum, gjafabréfum og vildarkortum. Yayland mun taka yfir alla gjafakortastarfsemi YAY á Íslandi og jafnframt alla útgáfu og rekstur á inneignarkortum Landsbankans.
Námsstyrkir 2025
3. júní 2025
8 milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 28. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjötta sinn og heildarupphæð styrkjanna nemur átta milljónum króna. Alls bárust um 450 umsóknir í ár.
Skólahreysti 2025
26. maí 2025
Holtaskóli bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2025
Holtaskóli er sigurvegari Skólahreysti 2025 og ber því titillinn Skólahreystimeistari með rentu! Úrslitin réðust í æsispennandi lokakeppni tólf grunnskóla fyrir troðfullum sal í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ, laugardagskvöldið 24. maí.
Landsbankinn
23. maí 2025
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 3. júní 2025.
Nasdaq bjalla
16. maí 2025
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans ráðgjafi ríkisins í vel heppnuðu Íslandsbankaútboði
Áhugi fjárfesta reyndist mjög mikill og skilaði sér í heildareftirspurn upp á um 190 milljarða króna. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá mikinn áhuga og þátttöku almennings. Í útboðinu voru seldir 850.000.007 hlutir á genginu 106,56 krónur á hlut, sem samsvarar heildarvirði upp á 90,6 milljarða króna. Þetta er stærsta hlutafjárútboð sem haldið hefur verið á Íslandi.
Austurstræti 11
15. maí 2025
Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 til sölu
Landsbankinn auglýsir til sölu hús bankans við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 í Reykjavík. Heildarstærð húsanna er 5.836 fermetrar og þar ef eru 1.380 fermetrar í kjallara. Húsin verða seld í einu lagi.
Nasdaq bjalla
13. maí 2025
Upplýsingar um útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka
Útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst kl. 8.30 þriðjudaginn 13. maí og gert er ráð fyrir að því ljúki kl. 17.00 fimmtudaginn 15. maí.
Austurbakki
28. apríl 2025
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í A-
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að lánshæfismat Landsbankans til langs tíma hefði verið hækkað úr BBB+ í A-. Lánshæfismatið hefur ekki verið hærra frá árinu 2014, þegar S&P hóf að veita bankanum lánshæfiseinkunnir.
16. apríl 2025
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 22. apríl nk.