Árshlutauppgör Landsbréfa 30. júní 2019
Starfsemi Landsbréfa gekk vel á fyrstu sex mánuðum ársins. Allir verðbréfa- og fjárfestingarsjóðir Landsbréfa skiluðu jákvæðri ávöxtun á tímabilinu og nam afkoma sjóðanna alls 6.858 milljónum króna. Hagnaður Landsbréfa nam 301 milljónum króna. Eignir í stýringu voru 163 milljarðar króna í lok tímabilsins.
- Hagnaður verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri hjá félaginu sem rennur til viðskiptavina í formi ávöxtunar nam 6.858 m. kr. á tímabilinu samanborið við 1.879 m. kr. á sama tímabili árið á undan.
- Hrein eign verðbréfa- og fjárfestingarsjóða í rekstri hjá félaginu í lok júní var 123 ma. kr. samanborið við 109 ma. kr. í lok síðasta árs.
- Heildar eignir í stýringu í lok júní voru 163 ma. kr. samanborið við 155 ma. kr. í lok síðasta árs.
- Hreinar rekstrartekjur námu 912 m. kr.
- Hagnaður félagsins eftir skatta var 301 m. kr.
Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa segir:
„Rekstur Landsbréfa og sjóða félagsins gekk vel á fyrri helmingi ársins. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá góða ávöxtun verðbréfa- og fjárfestingarsjóða Landsbréfa. Rekstur Landsbréfa sjálfra gekk einnig vel á tímabilinu, en hagnaður á fyrri árshelmingi var rúmar 300 milljónir og eru Landsbréf því að skila Landsbankanum eiganda félagsins góðri arðsemi.“
![Austurbakki](https://images.prismic.io/landsbankinn/ced8837c-715d-4bd8-921f-a043ee61f45e_Austurbakki.png?fit=max&w=3840&&q=50)
![Björn A. Ólafsson](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZobJ9h5LeNNTwzOO_LB2024_BK210509.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![Landsbankinn.pl](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZoU3LR5LeNNTwwKc_tolva-pl-2024.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/43e0b07e-8747-4f5c-8ebe-3169c50e1e25_LB_Hrifunes_0672_01.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,0,1708,1281&q=50)
![Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZnRdHZm069VX17b8_landsbankinn_defend_iceland.jpg?fit=max&w=3840&rect=219,0,3201,2401&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/34b0b00d-b34e-45f0-9b83-f017144502e2_1920px_Nikki_V4A7550.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,479,1281,961&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/34b0b00d-b34e-45f0-9b83-f017144502e2_1920px_Nikki_V4A7550.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,479,1281,961&q=50)
![Grænland](https://images.prismic.io/landsbankinn/ZlCHdCol0Zci9bJI_Gr%C3%A6nland.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,5,1600,1200&q=50)
![Netöryggi](https://images.prismic.io/landsbankinn/f42fdc35-e151-459a-801d-e531af81adc9_LB_Netoryggi_Folsk_skilabod_1920x1080_6.jpg?fit=max&w=3840&rect=240,0,1440,1080&q=50)
![Námsstyrkir 2024](https://images.prismic.io/landsbankinn/Zl3eBZm069VX1alz_4M6A0671.jpg?fit=max&w=3840&rect=223,63,1511,1133&q=50)