Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn og Capacent í sam­starf um Jafn­réttis­vísi

Landsbankinn hefur ákveðið að taka þátt í verkefninu Jafnréttisvísir Capacent en markmið þess er að stuðla að allsherjar vitundarvakningu um jafnréttismál.
9. febrúar 2018

Ráðgjafar Capacent munu á næstu mánuðum vinna að heildstæðri stefnumótun og markmiðasetningu á sviði jafnréttismála með bankanum. Á undanförnum árum hefur Landsbankinn náð markverðum árangri í jafnréttismálum og hefur í tvígang hlotið gullmerki jafnlaunaúttektar PwC.

Lilja Björk Einarsdóttir bankastjóri Landsbankans og Þórey Vilhjálmsdóttir hjá Capacent undirrituðu samkomulag um aðild bankans að verkefninu Jafnréttisvísi.

Jafnréttisvísir Capacent

Þú gætir einnig haft áhuga á
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.