Þjónustuverið opið til kl. 21.00
Vegna þeirrar skerðingar sem varð á þjónustu Landsbankans helgina 18.-19. nóvember og fram eftir degi mánudaginn 20. nóvember við innleiðingu á nýju tölvukerfi Reiknistofu bankanna og Landsbankans er Þjónustuverið opið frá kl. 9.00-21.00 þriðjudaginn 21. nóvember.
Í tengslum við innleiðinguna verða tilteknar breytingar á þjónustu við fyrirtæki auk þess sem vaxtatímabil veltureikninga breytist.
Nánari upplýsingar um breytingar á þjónustu við fyrirtæki
Aðstoð og nánari upplýsingar er hægt að fá með því að hringja í Þjónustuver Landsbankans, s. 410 4000, eða senda tölvupóst í netfangið info@landsbankinn.is.
Mikilvæg endurnýjun á gömlum kerfum
Endurnýjun á innlána- og greiðslukerfum Reiknistofu bankanna (RB) og Landsbankans er eitt stærsta hugbúnaðarverkefni sem RB og bankinn hafa ráðist í. Nýja kerfið leysir af hólmi mörg eldri tölvukerfi en hið elsta þeirra er um 40 ára gamalt. Í stað eldri kerfa verður tekið í notkun nýtt kerfi frá hugbúnaðarfyrirtækinu Sopra Banking Software. Nýja kerfið einfaldar og uppfærir tækniumhverfi bankans og er ódýrara í rekstri og sveigjanlegra en eldri kerfi. Með Sopra-kerfinu aukast einnig möguleikar á samnýtingu hugbúnaðarlausna í fjármálakerfinu.