Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

S&P hækk­ar láns­hæfis­ein­kunn Lands­bank­ans í BBB+/A-2 með stöð­ug­um horf­um

Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsbankans úr BBB/A-2 í BBB+/A-2 og telur horfurnar stöðugar. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins um lánshæfi Landsbankans sem birt var 25. október 2017.
25. október 2017

Alþjóðlega matsfyrirtækið S&P Global Ratings hefur hækkað lánshæfiseinkunn Landsbankans úr BBB/A-2 í BBB+/A-2 og telur horfurnar stöðugar. Þetta kemur fram í tilkynningu fyrirtækisins um lánshæfi Landsbankans sem birt var 25. október 2017.

Í fréttatilkynningu S&P kemur fram að hagvöxtur á Íslandi sé kröftugur, styrkleiki efnahagslífsins hafi aukist og dregið hafi úr skuldsetningu einkageirans en að auknar áhyggjur af efnahagslegu ójafnvægi vegi að hluta til upp á móti þessum þáttum. Ennfremur segir að hækkun lánshæfismats Landsbankans endurspegli sterka fjárhagsstöðu bankans sem S&P telur að muni ekki breytast, jafnvel þótt bankinn vinni áfram að því að ná fram hagstæðari fjármagnsskipan. Því telji S&P rétt að hækka lánshæfismat bankans í BBB+ til langs tíma og staðfesta A-2 lánshæfismat til skamms tíma. Mat um að horfurnar séu stöðugar endurspegli væntingar S&P um hagstæða þróun efnahagsmála á Íslandi og að fjárhagsstaða Landsbankans haldist áfram mjög sterk.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: „Hærra mat S&P á lánshæfi Landsbankans er til marks um sterka stöðu bankans og íslensks efnahagslífs og er í takti við væntingar bankans. Lánshæfiseinkunn Landsbankans hjá S&P hefur nú hækkað um þrjú þrep á þremur árum. Hærra lánshæfismat hefur, ásamt öðru, leitt til þess að kjör og aðgengi bankans að fjármögnun erlendis hefur batnað umtalsvert á undanförnum árum.“

Skýrslur og tilkynningar S&P eru aðgengilegar á vef Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
10. mars 2026
Þú færð tryggingarnar hjá Landsbankanum  
Landsbankinn, í samstarfi við TM, býður nú upp á tryggingar fyrir einstaklinga og fjölskyldur. Viðskiptavinum bankans bjóðast betri kjör og fyrsta flokks tryggingaþjónusta.
27. feb. 2026
EM-herferð Landsbankans með þrjár tilnefningar
Landsbankinn hlaut þrjár tilnefningar til Lúðursins, íslensku auglýsingaverðlaunanna, fyrir árið 2025. Lúðurinn er haldinn af ÍMARK, samtökum markaðsfólks, í samstarfi við Samband íslenskra auglýsingastofa. Þetta er í 40. sinn sem Lúðurinn er afhentur á Íslandi.
Stúlka með síma
27. feb. 2026
10 milljónir í námsstyrki
Landsbankinn hefur opnað fyrir umsóknir um námsstyrki fyrir árið 2026. Bankinn hefur stutt efnilegt námsfólk með styrkjum um 36 ára bil og í ár var ákveðið að hækka heildarupphæð námsstyrkjanna um tvær milljónir. Heildarupphæð námsstyrkja í ár er því 10 milljónir.
26. feb. 2026
Landsbankinn bakhjarl Listahátíðar í Reykjavík
Landsbankinn og Listahátíð í Reykjavík hafa skrifað undir samstarfssamning þess efnis að bankinn verði bakhjarl hátíðarinnar til ársins 2028. Sara Pálsdóttir, framkvæmdastjóri Samskipta og menningar hjá Landsbankanum, og Lára Sóley Jóhannsdóttir, listrænn stjórnandi Listahátíðar, skrifuðu undir samkomulagið.
18. feb. 2026
Kristín Gunnarsdóttir leiðir nýja deild Upplýsingamiðlunar 
Kristín Gunnarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Upplýsingamiðlunar, nýrrar deildar á sviði Samskipta og menningar sem tekur til starfa í lok febrúar. Undir deildina falla samskiptateymi og Greiningadeild bankans. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, mun áfram leiða greiningarteymið innan nýrrar deildar.
Svanni
18. feb. 2026
Frestur til að sækja um lánatryggingu úr Svanna
Landsbankinn hefur endurnýjað samstarfssamning við Svanna - lánatryggingasjóð kvenna, til fjögurra ára. Nýr samningur gildir út september 2029.
Austurbakki
5. feb. 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi við kaup Styrkás á Gallon
Styrkás hf. hefur í gegnum dótturfélag sitt Skeljung ehf. undirritað kaupsamning um kaup á öllu hlutafé í Gallon ehf. Seljandi er Skel fjárfestingafélag hf.
Netsvik
29. jan. 2026
Vörum við svikapóstum í nafni bankans
Að gefnu tilefni vill Landsbankinn vara við svikapóstum sem eru í umferð og herma nafn og útlit bankans. Efni póstanna er fölsk tilkynning um að viðtakandi þurfi að smella á hlekk í póstinum til að staðfesta millifærslu.
Netbanki fyrirtækja
16. jan. 2026
Breyting á fjárhæðum í millibankakerfi Seðlabankans
Seðlabanki Íslands hefur ákveðið að breyta fjárhæðamörkum í millibankakerfi sínu.
16. jan. 2026
Orden vann í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans
Teymið Orden bar sigur úr býtum í hugmyndahraðhlaupi Gulleggsins og Landsbankans og hlaut að launum 150.000 krónur í verðlaunafé og sæti í 10 liða lokakeppni Gulleggsins.