Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Breyt­ing­ar á skil­mál­um inn­láns­reikn­inga

Nýir almennir skilmálar innlánsreikninga taka gildi 13. nóvember 2017. Almennu skilmálarnir gilda um alla innlánsreikninga hjá Landsbankanum og fjalla um réttindi og skyldur bankans og eigenda innlánsreikninga. Við þessar breytingar falla eldri skilmálar veltureikninga, greiðslureikninga og sparireikninga úr gildi.
15. september 2017

Nýir almennir skilmálar innlánsreikninga taka gildi 13. nóvember 2017. Almennu skilmálarnir gilda um alla innlánsreikninga hjá Landsbankanum og fjalla um réttindi og skyldur bankans og eigenda innlánsreikninga. Við þessar breytingar falla eldri skilmálar veltureikninga, greiðslureikninga og sparireikninga úr gildi.

Breytingunum er fyrst og fremst ætlað að samræma skilmála og gera þá skýrari, s.s. skilmála um útreikning vaxta, um hvenær vextir eru lagðir við höfuðstól við vaxtaútreikning, um stöðu ófjárráða sparifjáreigenda o.fl. Breytingarnar hafa lítil sem engin áhrif á hag sparifjáreigenda og í langflestum tilvikum verða viðskiptavinir jafn vel eða betur settir eftir að breytingarnar hafa tekið gildi.

Gjöld vegna innlánsreikninga verða áfram samkvæmt verðskrá bankans en frá og með 13. nóvember verða þau gjaldfærð mánaðarlega en ekki við útskrift yfirlita eins og verið hefur. Breytingin leiðir ekki til aukinna útgjalda fyrir viðskiptavini.

Sérstakir skilmálar gilda um einstaka innlánsreikninga og gilda sérákvæðin umfram almennu skilmálana. Breytingar á sérskilmálum eftirtaldra reikninga taka gildi frá og með 13. nóvember 2017, eins og fram kemur hér að neðan:

Fastvaxtareikningur

  • Breyting á ákvæðum um hvenær vextir eru lagðir við höfuðstól við vaxtaútreikning og ákvæðum um úttekt af reikningum fyrir lok binditíma.

Framtíðargrunnur

  • Vextir verða einnig bundnir og fjármagnstekjuskattur ekki reiknaður út fyrr en reikningur losnar við 18 ára aldur reikningseiganda.

Vaxtareikningur 30

  • Vextir verða bundnir, eins og aðrar innborganir.

Heiti reikninga í erlendri mynt munu einnig breytast 13. nóvember 2017.

Myntveltureikningur

  • Heiti reikningsins breytist í Veltureikningur í erlendri mynt.

Gjaldeyrisreikningur

  • Heiti reikningsins breytist í Sparireikningur í erlendri mynt.
Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
17. sept. 2025
Seinni arðgreiðsla ársins greidd í dag
Í samræmi við ákvörðun aðalfundar greiddi Landsbankinn í dag 9.446 milljónir króna í arð til eiganda. Heildararðgreiðslur bankans á árabilinu 2013-2025 nema þar með um 210,6 milljörðum króna.
Hvatasjóður 2025
15. sept. 2025
Úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Dana Zaher El Deen K. Al Hennaw og Diana Al Barouki hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2025-2026.
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir
10. sept. 2025
Þórunn Inga forstöðumaður Trygginga hjá Landsbankanum 
Þórunn Inga Ingjaldsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður nýju einingarinnar Tryggingar á Einstaklingssviði hjá Landsbankanum og mun hún hefja störf í byrjun október.  
Snjallsími
3. sept. 2025
Breyting á dagslokum bankadaga
Frá og með 8. september 2025 verða dagslok bankadaga í innlánakerfum Reiknistofu bankanna færð frá kl. 21.00 til miðnættis. Þetta hefur m.a. þau áhrif að millifærslur sem eru gerðar eftir kl. 21.00 og fram að miðnætti verða bókaðar sama dag.
3. sept. 2025
Sjálfbærnidagur Landsbankans í Grósku 4. september
Sjálfbærnidagur Landsbankans 2025 verður haldinn í Grósku fimmtudaginn 4. september. Á sjálfbærnideginum fáum við innsýn í hvernig íslensk fyrirtæki nálgast sjálfbærnimálin, hvernig þau takast á við áskoranir og hvaða tækifæri eru fram undan. Við lofum bæði fjölbreyttri og spennandi dagskrá og ljúffengum veitingum! 
Austurvegur 11, Selfossi
26. ágúst 2025
Samið um nýtt húsnæði fyrir Landsbankann og TM á Selfossi
Landsbankinn og TM á Selfossi munu flytja sig yfir í nýtt hús við Austurveg 11 á Selfossi fyrir árslok 2027, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við Fossver ehf.
Eystra horn
25. ágúst 2025
Landsbréf skila góðum árangri á fyrri hluta ársins
Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2025.
Listaverk kvenna í eigu Landsbankans
25. ágúst 2025
Listakonur í Landsbankanum - sýning og fleiri verk eftir konur á listaverkavefnum
Á nýrri sýningu sem opnaði í Reykjastræti 6 á Menningarnótt er sjónum beint að listaverkum í eigu bankans sem eru eftir konur. Við opnuðum einnig nýjan hluta á listaverkavef bankans þar sem birt eru um 90 verk eftir konur.
18. ágúst 2025
Dagskrá Landsbankans, Hörpu og Hafnartorgs á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 23. ágúst næstkomandi. Landsbankinn hefur verið máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að venju upp á fjölbreytta dagskrá, bæði í Reykjastræti og við Hörputorg í samstarfi við Hafnartorg og Hörpu.
Listaverk kvenna í eigu Landsbankans
14. ágúst 2025
Listakonur í Landsbankanum: Leiðsögn á Menningarnótt um nýja sýningu
Í tilefni Kvennaárs 2025 opnar ný myndlistarsýning í Reykjastræti 6 þar sem sjónum verður beint að listaverkum í eigu bankans sem eru eftir konur. Sýningin opnar á Menningarnótt og um leið uppfærum við listaverkavef Landsbankans með sérstakri umfjöllun um listaverk eftir konur.