Fréttir

Ráð­stefna Lands­bank­ans um ferða­þjón­ustu á Ís­landi

Landsbankinn efnir til haustráðstefnu um stöðu og framtíðarhorfur ferðaþjónustu á Íslandi undir yfirskriftinni Vöxtur í leit að jafnvægi. Ráðstefnan verður haldin í Silfurbergi Hörpu þriðjudaginn 26. september kl. 8.30-11.00.
11. september 2017

Landsbankinn efnir til haustráðstefnu um stöðu og framtíðarhorfur ferðaþjónustu á Íslandi undir yfirskriftinni Vöxtur í leit að jafnvægi. Ráðstefnan verður haldin í Silfurbergi Hörpu þriðjudaginn 26. september kl. 8.30-11.00.

Frá árinu 2010 hafa um sjö milljónir ferðamanna heimsótt Ísland og heildargjaldeyristekjur ferðaþjónustunnar nema um 2.000 milljörðum króna. Mikilvægi ferðaþjónustunnar er óumdeilt en hvert stefnir greinin og hvað er framundan? Þetta ásamt nýrri greiningu Hagfræðideildar Landsbankans eru viðfangsefni ráðstefnunnar og búast má við áhugaverðum pallborðsumræðum.

Dagskrá

  • Vatnaskil eða vaxtarverkir?Dr. Daníel Svavarsson, forstöðumaður Hagfræðideildar Landsbankans.
  • Ferðaþjónustan áfram í forystuhlutverkiGústaf Steingrímsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum.
  • Þróun og tækifæri ferðaþjónustunnar á AsíumarkaðiÁrsæll Harðarson forstöðumaður hjá Icelandair og formaður stjórnar Íslenska-kínverska viðskiptaráðsins.
  • Framtíð ferðaþjónustu á Íslandi: Að finna vextinum farvegAnita Mendiratta, sérfræðingur í ferðaþjónustu og sérstakur ráðgjafi aðalritara Ferðamálastofnunar Sameinuðu þjóðanna.

Pallborðsumræður

Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandair Group, Elín Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Isavia, og Skúli Mogensen, stofnandi og forstjóri WOW air, ræða framtíðarhorfur ferðaþjónustu og flugrekstrar á Íslandi.

Sveinn Þórarinsson, sérfræðingur í Hagfræðideild Landsbankans, stýrir umræðum.

Fundarstjóri verður Guðmunda Ósk Kristjánsdóttir, viðskiptastjóri hjá Landsbankanum.

Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur er ókeypis.

Skráning

Þú gætir einnig haft áhuga á
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
14. júní 2024
Do logowania można używać aplikacji Auðkenni
Zwracamy uwagę na fakt, iż do logowania można używać aplikacji Auðkenni, jaki i do identyfikacji w bankowości elektronicznej i aplikacji bankowej. Ponadto niebawem będzie można składać kwalifikowane podpisy elektroniczne. Może to być szczególnie przydatne, gdy będziesz miał(a) dostęp do Internetu, ale nie będziesz miał(a) zasięgu sieci telefonicznej lub w przypadku zagranicznego numeru telefonu komórkowego.
Grænland
12. júní 2024
Fjárfestadagur Amaroq Minerals
Fjárfestadagur Amaroq Minerals verður í húsnæði Landsbankans í Reykjastræti 6, fimmtudaginn 13. júní kl. 14.00-16.00. Húsið opnar kl. 13.30 og að fundi loknum verður boðið upp á drykki og léttar veitingar.
Netöryggi
10. júní 2024
Vörum við svikatilraunum í tölvupósti
Við vörum við tölvupósti sem sendur er í nafni Landsbankans. Í póstinum er sagt að reikningi viðtakanda hjá bankanum hafi verið lokað og fólk beðið um að smella á hlekk til að skrá sig inn. Með þessu vilja svikararnir fá fólk til að gefa upp innskráningarupplýsingar.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur