Gjöf til framtíðar

Kona og barn

Gjöf til fram­tíð­ar

Við hvetj­um til sparn­að­ar og gef­um börn­um virkra við­skipta­vina á fyrsta ald­ursári 5.000 kr. gjöf inn á Fram­tíð­ar­grunn­inn sinn hjá Lands­bank­an­um.

Aldrei of snemmt að byrja að spara

Til þess að fá gjöfina þarf barnið að eiga Framtíðargrunn hjá okkur og svo þarf að þiggja gjöfina hér neðan fyrir 1. október. Gjöfin er lögð inn á reikninginn í október.

Einfalt að stofna reikning í appinu

Ef barnið á ekki Framtíðargrunn geta foreldrar eða aðrir forsjáraðilar stofnað hann í appinu sínu þar sem reikningurinn og allar hreyfingar verða sýnilegar strax.

Skjámyndir úr appi

Framtíðargrunnur

Framtíðargrunnur er sparireikningur sem hentar vel fyrir börnin og er fyrst laus til útborgunar við 18 ára aldur. Foreldrar eða aðrir forsjáraðilar sækja um reikninginn í appinu eða netbankanum. Hægt er að velja hvort reikningurinn er verðtryggður eða óverðtryggður og hann ber hæstu innlánsvexti sem eru í boði hverju sinni. Það er auðvelt að spara reglulega með sjálfvirkum millifærslum inn á hann.

Sproti

Sprotarnir

Sprotarnir eru fyrir yngsta fólkið. Öll börn 8 ára og yngri sem eru með reikning hjá okkur verða sjálfkrafa Sprotafélagar. Hér byrjum við að huga að sparnaði fyrir framtíðina og lærum hvernig fara á með peningana.

Fjármunir ófjárráða

Ákvarðanir um fjármál eru mikilvægur þáttur í lífi fólks óháð aldri og hér hafa verið teknar saman reglur sem gilda um meðferð fjármuni barna. Umfjöllunin er þó langt frá því að vera tæmandi.

Hvaða upplýsingar vinnur bankinn um þig?

Allar upplýsingar um þig eða sem tengjast þér eru persónuupplýsingar, t.d. nafnið þitt, kennitalan, heimilisfang og símanúmer og jafnvel ljósmyndir af þér eða myndbönd.

Bankaþjónusta fyrir börn og unglinga

Við níu ára aldur geta börn, með samþykki foreldra eða forsjáraðila, fengið debetkort og skoðað bankareikningana sína í appi og netbanka. Við 13 ára aldur þurfa þau ekki lengur slíkt samþykki.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur