Framtíðargrunnur

Framtíðargrunnur

Framtíðargrunnur hentar einkar vel þeim sem vilja leggja grunn að sparnaði barna til framtíðar. Reikningurinn ber hæstu vexti almennra innlánsreikninga hverju sinni og er því góður kostur fyrir langtímasparnað.

  • Bundinn til 18 ára aldurs
  • Verðtryggður eða óverðtryggður
  • Vextir greiðast árlega
  • Skilmálar (PDF)
Mæðgin í tölvu

Verðtryggður eða óverðtryggður reikningur?

Á óverðtryggðum Framtíðargrunni er innstæða reikningsins laus til útborgunar við 18 ára aldursdag. Ekki er hægt að leggja inn á reikninginn eftir 18 ára aldur.

Á verðtryggðum Framtíðargrunni bindast innborganir eftir 15 ára aldur reikningseiganda í 36 mánuði og fær hver innborgun sinn lausnartíma. Eftir 18 ára afmæli er innstæða reikningsins, sem hefur náð að lágmarki 36 mánaða binditíma, laus í einn mánuð. Að þeim mánuði liðnum þarf að panta úttekt af reikningnum. Útborgun greiðist út 31 degi eftir pöntun.

Ekki er hægt að leggja inn á eða stofna verðtryggðan Framtíðargrunn eftir 22 ára aldur.

Stúlkur á hlaupahjólum

Vextir, verðbætur og fjármagnstekjuskattur

Vextir og verðbætur eru bundin til 18 ára aldurs og því er fjármagnstekjuskattur ekki tekinn út af reikningi um hver áramót, heldur reiknaður með skattprósentu á hverjum tíma og dregin frá innstæðu á 18 ára afmælisdegi reikningseiganda. Á 18 ára afmælisdegi reikningseiganda eru vextir og verðbætur reiknaðar og lagðar við höfuðstól. Eftir 18 ára reiknast vextir og verðbætur um hver áramót og samhliða er fjármagnstekjuskattur dreginn af.

Vextir

Tegund Ársvextir
Verðtryggður %interest40%
Óverðtryggður %interest26%

Reiknaðu út sparnaðinn

Reiknaðu hve mikið þú þarft að leggja fyrir á mánuði, í hve langan tíma eða hvað þú munir eiga mikið í lok sparnaðartímabils.

ISK
%
ISK
mán.
24.703 kr.

Það er einfalt að byrja að spara

Með reglulegum sparnaði í netbankanum þarft þú ekki að muna eftir því að leggja til hliðar. Upphæðin þarf ekki að vera há en margt smátt gerir eitt stórt.

Sjálfvirkar millifærslur

Þú ákveður upphæðina, hvenær skal millifæra og velur sparnaðarreikninginn. Sparnaðurinn verður þá framkvæmdur sjálfkrafa í hverjum mánuði.

Sparað með kortanotkun

Viltu spara ákveðna upphæð við hverja notkun á debet- eða kreditkortinu þínu? Hægt er að hækka hverja færslu um ákveðna upphæð eða upp í næsta hundrað eða þúsund.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur