Við kaup á fasteign getur lánshlutfall verið allt að 80% af kaupverði eignar. Við lánum allt að 90% fyrir fyrstu kaupendur.
Við endurfjármögnun getur hámarks veðsetning verið 70% af fasteignamati eignar.
Íbúðalánið þarf að vera á fyrsta veðrétti og/eða í samfelldri veðröð frá fyrsta veðrétti.
Lánsfjárhæð fer m.a. eftir niðurstöðum úr greiðslumati þínu og veðsetningarhlutfalli fasteignarinnar. Ekki er skilgreind hámarksfjárhæð láns, en bankinn gerir ríkari kröfur til niðurstöðu greiðslumats varðandi tekjuafgang, gott lánshæfi og hámarksveðsetningar þegar um mjög há lán er að ræða.
Einnig þarft þú að hafa í huga að Seðlabankinn hefur sett reglur um hámark greiðslubyrðar fasteignalána í hlutfalli við tekjur neytenda. Hámark mánaðarlegrar greiðslubyrðar fasteignalána má ekki fara yfir 35% af mánaðarlegum ráðstöfunartekjum neytenda þegar fasteignalán er veitt. Hámarkið má þó vera 40% ef um er að ræða fyrstu fasteignakaup.
Pantaðu tíma í ráðgjöf ef þú þarft hærra lán en 60 milljónir.