Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lausnir fyrir þig

Lausn­ir til að lækka greiðslu­byrði

Greiðsluþak

Með greiðsluþaki er hægt að lækka greiðslur á íbúðaláni tímabundið. Valin er föst mánaðarleg fjárhæð sem greidd er í 12 mánuði.

Hvernig virkar greiðsluþak?

    Mismunurinn á föstu greiðslunni og fullri mánaðarlegri greiðslu leggst við höfuðstól lánsins að 12 mánuðum liðnum og dreifist á þá gjalddaga sem eftir eru af láninu. Þetta þýðir að höfuðstóllinn mun hækka eftir greiðsluþak.

    Þú getur valið hversu há fasta greiðslan á að vera, en hún  þarf að lágmarki að nema 6% vaxtagreiðslu eða 50% af mánaðarlegri greiðslu, eftir því sem hærra reynist.

Skapar tímabundinn sveigjanleika

    Greiðsluþak er fyrir viðskiptavini Landsbankans sem hafa verið með íbúðalán síðastliðna 6 mánuði og eru í skilum. Þjónustan er ætluð þeim sem óska eftir tímabundnum sveigjanleika, t.d. í háu vaxtaumhverfi, en það er mikilvægt að hafa í huga að greiðsluþak skilar sér að lokum í hærri höfuðstól og hærri heildarkostnaði láns. 

    Hægt er að setja greiðsluþak á óverðtryggð íbúðalán, bæði með föstum og breytilegum vöxtum. Sé viðskiptavinur með blandað lán er hægt að setja greiðsluþak á óverðtryggða hluta lánsins.

Lægri greiðslubyrði í fæðingarorlofi

Ef þú ert á leiðinni í fæðingarorlof bjóðum við þér að lækka mánaðarlega greiðslubyrði íbúðaláns um helming í allt að 12 mánuði.

Hvað þarf ég að gera?

    Þú þarft að sýna tekjuáætlun frá fæðingarorlofssjóði eða staðfestingu frá vinnuveitanda um að þú sért á leiðinni í fæðingarorlof og svo gerum við viðauka við lánið.

    Vextir safnast þá upp og leggjast við höfuðstól lánsins 12 mánuðum eftir upphaf samkomulagsins.

Að velja íbúðalán - Fimm þættir til umhugsunar

Við hvetjum viðskiptavini til að skoða íbúðalánin sín reglulega með kjör, greiðslubyrði og fjárhagslega stöðu heimilisins í huga.

Viðbótarlífeyrissparnaður notaður til að spara fyrir fyrstu íbúð

Ein hagstæðasta leiðin til að spara fyrir útborgun fyrir fyrstu íbúð er að skrá sig í viðbótarlífeyrissparnað því slíkan sparnað er hægt að nota skattfrjálst til útborgunar.

Fimm leiðir til að setja sér fjárhagsleg markmið

Fjárhagsleg markmiðasetning er oft grunnurinn að því að önnur markmið geti orðið að veruleika.

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.