Óverðtryggð íbúðalán

Óverðtryggð íbúðalán

Höfuðstóll óverðtryggðra lána er ekki bundinn við verðbólgu sem þýðir að lánið hækkar aldrei, heldur lækkar jafnt og þétt út lánstímann sem skilar sér í hraðari eignamyndun heldur en þegar um verðtryggt lán er að ræða.

Óverðtryggðir vextir
Óverðtryggðu íbúðalánin okkar eru ýmist með breytilegum eða föstum vöxtum.
Breytilegir vextir
Frá
...
Fastir vextir
Frá
...

Hvernig virka óverðtryggð íbúðalán?

Þú borgar meira í upphafi og eignamyndun er hraðari en með verðtryggðu láni.
Vextir eru hærri en engar verðbætur leggjast á höfuðstól.
Lánstími óverðtryggðra íbúðalána getur verið allt að 40 ár.
Lánað er fyrir allt að 70% af kaupverði og allt að 80% með viðbótarláni.
Hægt er að velja breytilega vexti eða fasta vexti í 3 eða 5 ár.
Hægt er að velja um jafnar afborganir eða jafnar greiðslur.

Viltu blanda verðtryggðu og óverðtryggðu láni?

Með því að taka blandað íbúðalán sameinar þú kosti verðtryggðra og óverðtryggðra lána. Þú getur tekið hluta íbúðalánsins verðtryggðan og hluta óverðtryggðan, allt eftir því hvaða hlutfall hentar þér best. Þú getur borið saman verðtryggð, óverðtryggð og blönduð íbúðalán í reiknivélinni.

Hver er munurinn á breytilegum og föstum vöxtum?

Breytilegir vextir geta hækkað og lækkað í takt við sveiflur á markaði og efnahagsástand og taka mið af vaxtatöflu hverju sinni. Þetta getur verið gott eða slæmt eftir því í hvora áttina vextirnir sveiflast.

Með föstum vöxtum bindur þú vextina í tiltekinn tíma og tryggir þig fyrir vaxtasveiflum. Hægt er að festa vexti í 36 eða 60 mánuði í senn. Ef lánshlutfall er lægra en 60% af fasteignamati íbúðarinnar greiðir þú lægri vexti. Vextirnir lækka enn frekar ef lánshlutfall er lægra en 50% af fasteignamati. Á lánum með föstum vöxtum er uppgreiðslugjald.

Breytilegir vextir

Lánshlutfall allt að 70% %interest143%
Lánshlutfall 70% til 85%* %interest144%

Fastir vextir

36 mánaða binding vaxta 60 mánaða binding vaxta
Lánshlutfall allt að 50% m.v. fasteignamat eignar %interest1125% %interest1126%
Lánshlutfall allt að 60% m.v. fasteignamat eignar %interest1185% %interest1186%
Lánshlutfall allt að 70% %interest273% %interest274%
Lánshlutfall 70% til 85%* %interest275% %interest276%

*85% veðhlutfall er fyrir fyrstu kaup.

Fjölbýlishús
Hvort er hagstæðara að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán?

Flest þeirra sem taka fasteignalán eða eru að hugsa um að endurfjármagna eldri lán velta því fyrir sér hvort hagstæðara sé að taka verðtryggt eða óverðtryggt lán.

Fasteignir
Ætti ég að festa vextina á íbúðaláninu mínu?

Í þessari grein er fjallað um muninn á föstum og breytilegum vöxtum og hvað þarf að hafa í huga þegar ákvörðun um lánsform er tekin.

Viðhald íbúðahúsnæðis
Ertu að kaupa þína fyrstu fasteign?

Íbúðakaup geta virst algjör frumskógur í fyrstu enda að mörgu að huga, bæði að atriðum sem snúast um fjármál og fasteignakaupin sjálf.

Algengar spurningar

Komdu í hóp ánægðra viðskiptavina

Það tekur aðeins örfáar mínútur að fá aðgang að netbanka og appi, stofna reikning og fá kort.

Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur