Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Að­al­fund­ur Lands­bank­ans 2020

Aðalfundur Landsbankans hf. verður haldinn föstudaginn 27. mars 2020 kl. 14.00 í Silfurbergi í Hörpu í Reykjavík.
Höfuðstöðvar Landsbankans Austurstræti 11
5. mars 2020 - Landsbankinn

Drög að dagskrá

  1. Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
  2. Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
  3. Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári.
  4. Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
  5. Tillögur til breytinga á samþykktum.
  6. Kosning bankaráðs.
  7. Kosning endurskoðanda.
  8. Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
  9. Heimild til kaupa á eigin hlutum.
  10. Önnur mál.

Aðrar upplýsingar

Hluthafar eiga rétt á því að fá mál sett á dagskrá aðalfundar og leggja fram ályktunartillögur. Tillögur og óskir um að koma máli á dagskrá aðalfundar þurfa að vera skriflegar og berast bankanum fyrir kl. 16.00, miðvikudaginn 11. mars 2020.

Endanleg dagskrá fundarins og gögn er lögð verða fyrir aðalfundinn verða gerð aðgengileg fimmtudaginn 12. mars 2020, á vefsíðu bankans: Hluthafafundir.

Samkvæmt 63. gr. a. hlutafélagalaga nr. 2/1995 skal tilkynna skriflega um framboð til bankaráðs skemmst fimm dögum fyrir aðalfundinn. Tilkynna skal skriflega um framboð til bankaráðs fyrir kl. 14.00, sunnudaginn 22. mars 2020 til skrifstofu bankastjóra, Austurstræti 11, Reykjavík. Upplýsingar um frambjóðendur til bankaráðs verða lagðar fram og birtar á vef bankans tveimur dögum fyrir aðalfundinn.

Eitt atkvæði fylgir hverri einni krónu í hlutafé í bankanum, að frádregnum eigin hlutum, sem eru án atkvæðisréttar.

Atkvæðaseðlar og önnur gögn verða aðgengileg á fundarstað frá kl. 13.30 á fundardegi.

Umboðsmenn hluthafa skulu framvísa skriflegum umboðum við inngang.

Hluthafafundir Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
30. apríl 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir fyrstu þrjá mánuði ársins 2025
Hagnaður Landsbankans á fyrstu þremur mánuðum ársins 2025 nam 7,9 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 7,2 milljarða króna hagnað á sama tíma í fyrra. Arðsemi eiginfjár á tímabilinu var 10,0% samanborið við 9,3% á sama tímabili árið áður.
Austurbakki
19. mars 2025
Niðurstöður aðalfundar Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans, sem haldinn var 19. mars 2025, samþykkti að greiða 18.892 milljónir króna í arð til hluthafa.
Austurbakki
5. mars 2025
Aðalfundur Landsbankans 2025
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2025 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
28. feb. 2025
Landsbankinn og TM eru betri saman!
Uppgjör og afhending vegna kaupa Landsbankans á TM tryggingum hf. af Kviku banka fór fram í dag og hefur Landsbankinn tekið við rekstri félagsins. TM verður rekið sem dótturfélag Landsbankans.
Austurbakki
21. feb. 2025
Samkeppniseftirlitið samþykkir kaup Landsbankans á TM
Samkeppniseftirlitið hefur samþykkt kaup Landsbankans á öllu hlutafé í TM tryggingum hf. með gerð sáttar milli bankans og eftirlitsins.
Austurbakki
13. feb. 2025
Opnu söluferli á hlut í Kea-hótelum lokið án sölu
Opnu söluferli á 35% eignarhlut Hamla ehf. sem er dótturfélags Landsbankans, í hótelkeðjunni Keahótelum ehf. er lokið, án þess að samningar hafi náðst um sölu.
Hjón úti í náttúru
13. feb. 2025
Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans komin út
Árs- og sjálfbærniskýrsla Landsbankans fyrir árið 2024 er komin út. Í skýrslunni er fjallað um þróun og breytingar á þjónustu bankans, árangur í rekstri, trausta fjármögnun og áhættustjórnun, jákvæð áhrif bankans á samfélagið og ýmislegt fleira.
Austurbakki
11. feb. 2025
Landsbankinn gefur út AT1 verðbréf
Landsbankinn lauk í dag sölu verðbréfa sem telja til viðbótar eiginfjárþáttar 1 (e. Additional Tier 1 securities (AT1)), að fjárhæð 100 milljónir bandaríkjadala. Um er að ræða fyrstu AT1 útgáfu Landsbankans og voru bréfin seld til fjárfesta á föstum 8,125% vöxtum.
Austurbakki
30. jan. 2025
Uppgjör Landsbankans fyrir árið 2024
Hagnaður Landsbankans á árinu 2024 nam 37,5 milljörðum króna eftir skatta, samanborið við 33,2 milljarða króna árið áður.
Austurbakki
13. des. 2024
Góð kjör í útgáfu víkjandi skuldabréfa
Landsbankinn lauk í dag útboði víkjandi skuldabréfa sem teljast til eiginfjárþáttar 2 (e. Tier 2).