5. mars 2025
Aðalfundur Landsbankans verður haldinn miðvikudaginn 19. mars 2025 kl. 16.00 í Reykjastræti 6, Reykjavík.
Dagskrá
- Skýrsla bankaráðs um starfsemi bankans síðastliðið starfsár.
- Skýrsla bankastjóra.
- Ársreikningur fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda lagður fram til staðfestingar.
- Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar á næstliðnu reikningsári.
- Tillaga bankaráðs um starfskjarastefnu lögð fram til samþykktar.
- Tillögur til breytinga á samþykktum, ef borist hafa.
- Kosning bankaráðs.
- Tilnefning í endurskoðunarnefnd.
- Kosning endurskoðanda.
- Ákvörðun um þóknun til bankaráðsmanna fyrir næsta kjörtímabil.
- Heimild til kaupa á eigin hlutum.
- Önnur mál.
Hluthafar sem vilja fylgjast með streymi frá fundinum geta óskað eftir aðgangi með því að senda beiðni þess efnis með nafni og kennitölu á netfangið adalfundur@landsbankinn.is.
