Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Lands­bank­inn gef­ur út græn skulda­bréf fyr­ir 300 millj­ón evr­ur

Austurbakki
16. júní 2025

Landsbankinn lauk í dag sölu á grænum skuldabréfum til fimm ára að fjárhæð 300 milljónir evra. Skuldabréfin bera 3,50% fasta vexti og voru seld á kjörum sem jafngilda 135 punkta álagi á miðgildi vaxtatilboða í vaxtaskiptasamningum á markaði.

Heildareftirspurn nam 1,3 milljörðum evra frá um eitt hundrað fjárfestum frá Bretlandi, Norðurlöndunum, meginlandi Evrópu og Asíu.

Skuldabréfin verða gefin út undir EMTN-útgáfuramma bankans með vísan í sjálfbæra fjármálaumgjörð bankans sem vottuð er af Sustainalytics. Stefnt er að því að skuldabréfin verði tekin til viðskipta í írsku kauphöllinni þann 24. júní 2025.

Umsjónaraðilar voru Deutsche Bank, Goldman Sachs, Morgan Stanley og UBS.