14. júní 2021 - Greiningardeild
Vikan framundan
- Á þriðjudag klukkan 12 lýkur hlutafjárútboð Íslandsbanka. Þjóðskrá birtir einnig maímælingu vísitölu íbúðaverðs þennan dag.
- Á miðvikudag birtir Seðlabankinn tölur um greiðslumiðlun.
Mynd vikunnar
Stefnt er að því að taka hlutbréf í Íslandsbanka til viðskipta í kauphöllinni eftir að hlutafjárútboði í félaginu líkur. Samkvæmt útboðslýsingu er áætlað að verðið verði á bilinu 71 kr. og 79 kr. á hlut, en endanlegt útboðsgengi mun verða ákveðið í tilboðsferli. Miðað við þetta verðbil mun markaðsvirði bankans verða á bilinu 142 til 158 milljarðar króna. Bankinn mun þá verða þriðja stærsta félagið í Kauphöllinni á eftir Marel og Arion banka.
Það helsta frá vikunni sem leið
- Við spáum 4,3% verðbólgu júní.
- Íslandsbanki birti tilkynningu um verðbil og lýsingu vegna hlutafjárútboðs, um að áskriftir hafi borist í alla hluti sem í boði voru og um leiðbeinandi lokaverð.
- Frá því að Seðlabankinn hóf að lækka vexti í fyrra hafa heimilin í landinu aukið töku óverðtryggðra íbúðalána á breytilegum vöxtum.
- Skráð atvinnuleysi var 9,1% í maí en var 10,4% í apríl.
- Álverð hefur ekki verið hærra í áratug.
- Helstu stuðningsaðgerðir stjórnvalda vegna heimsfaraldursins nema nú ríflega 95 mö.kr.
- 14.400 erlendir ferðamenn fóru um Leifsstöð í maí.
- Icelandair birti flutningstölur fyrir maí.
- Icelandair gekk frá sölu á öll hlutafé í Iceland Travel.
- Framkvæmdastjórn Alþjóðagjaldeyrissjóðsins lauk reglubundinni umræðu um Ísland.
- Seðlabankinn birti útreikning á raungengi í maí, fjármálareikninga fjármálafyrirtækja fyrir 1. ársf. og gagnatöflur vátryggingafélaga fyrir 1. ársfj.
- Hagstofan birti aflaverðmæti á 1. ársfjórðungi, tilraunatölfræði um gistinætur á hótelum í maí, fjármál hins opinbera á 1. ársfjórðungi og ráðstöfunartekjur heimilisgeirans.
- Lánmál ríkisins birtu Markaðsupplýsingar.
- Orkuveita Reykjavíkur stækkaði grænan skuldabréfaflokk, Landsbankinn lauk útboði sértryggðra skuldabréfa.
Hagtölur og markaðsupplýsingar
Þú gætir einnig haft áhuga á

1. okt. 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.

30. sept. 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands haldi vöxtum óbreyttum í næstu viku. Við síðustu vaxtaákvörðun gaf nefndin nokkuð skýrt til kynna að hún teldi aðhaldið nægjanlegt. Þróun verðbólgu frá síðasta fundi hefur verið í takt við spá bankans, verðbólguvæntingar eru svipaðar og fyrir síðustu ákvörðun og hagkerfið sýnir áfram merki kólnunar. Óvissan snýr helst að því hvernig nefndin metur áhrif fjárlagafrumvarpsins og mögulegar afleiðingar forsendubrestsins í kjarasamningum.

29. sept. 2026
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,39% á milli mánaða í september og verðbólga hækkar því úr 5,6% í 5,9%. Við spáðum 5,8% verðbólgu. Eldsneytisverð hækkaði töluvert í mánuðinum sem bæði má rekja til þess að tímabundin lækkun á virðisaukaskatti rann út í byrjun mánaðar og hækkana á heimsmarkaðsverði á olíu. Áhrif hækkunar komugjalda á heilsugæslu höfðu einnig áhrif til hækkunar, í takt við spá okkar.

28. sept. 2026
Samkvæmt talningu HMS hefur íbúðum í byggingu fækkað. Seðlabankinn birti í liðinni viku yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleika. Á morgun birtir Hagstofan verðbólgutölur fyrir september. Við spáum því að verðbólgan hækki úr 5,6% í 5,8%.

21. sept. 2026
Þrátt fyrir minna flugframboð til og frá landinu hefur ferðamönnum aðeins fækkað um 1%, það sem af er ári. Tengifarþegum hefur aftur á móti fækkað og Íslendingar hafa farið í færri utanlandsferðir í ár en í fyrra. Nýlegar kortaveltutölur benda til þess að neysla ferðamanna hafi tekið við sér yfir sumarið og að áhrif sólmyrkvans hafi fremur birst í aukinni neyslu en fjölgun gesta.

21. sept. 2026
Greiðslukortavelta heimilanna dróst saman um 1,2% á milli ára í ágúst, að teknu tilliti til verðlags og gengis. Íbúðaverð hækkaði lítillega í ágúst, en leiguverð lækkaði eftir að hafa hækkað sex mánuði í röð.

18. sept. 2026
Kortavelta Íslendinga, að teknu tilliti til verðlags og gengis, dróst saman í ágúst og samdrátturinn hefur ekki mælst meiri síðan á síðari hluta árs 2023. Innanlands eyddu Íslendingar minna en á sama tíma í fyrra og vöxturinn í neyslu erlendis var minni en á síðustu mánuðum.

17. sept. 2026
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,23% í september og að ársverðbólga aukist úr 5,6% í 5,8%. Eldsneytisverð hækkaði skarpt um mánaðamótin þegar tímabundin lækkun virðisaukaskatts féll úr gildi. Á móti kemur að flugfargjöld til útlanda lækka í takt við árstíðasveiflu. Hærri komugjöld á heilsugæslu og gjöld vegna skimunar munu svo einnig hafa áhrif í mánuðinum.

14. sept. 2026
Fjöldi erlendra ferðamanna sem komu til landsins í ágúst stóð nánast í stað á milli ára, en utanlandsferðum Íslendinga fækkaði um 10% á sama tíma. Í síðustu viku birti fjármálaráðherra fjárlagafrumvarp fyrir næsta ár. Í vikunni fáum við vísitölu íbúðaverðs og gögn um kortaveltu í ágúst.

9. sept. 2026
Um 150 milljarða króna halli mældist á viðskiptum við útlönd á fyrstu sex mánuðum ársins. Þrátt fyrir það hefur krónan styrkst. Skýringin er líklega sú að viðskiptum við útlönd fylgir ekki alltaf samsvarandi gjaldeyrisflæði. Viðskiptajöfnuður mælir tekjur og gjöld samkvæmt uppgjörsreglum en gengið ræðst af raunverulegum og væntum kaupum og sölu á gjaldeyri.
