Hag­sjá: Verð á olíu kom­ið yfir 70 Banda­ríkja­dali

Heimsmarkaðsverð olíu hefur verið í hækkunarfasa á undanförnum mánuðum og er verðið aftur komið yfir 70 Bandaríkjadali á fatið.
24. apríl 2019

Samantekt

Heimsmarkaðsverð á olíu hefur hækkað um nálægt 34% það sem af er ári eftir verulega lækkun undir lok síðasta árs. Verð á Brent-olíu fór í tæpan 71 Bandaríkjadal á fatið í byrjun apríl en verðið hafði ekki farið yfir 70 dali síðan 12. nóvember síðastliðinn. Frá þeim tímapunkti fór verðið lægst niður í rúma 53 dali í lok árs en hefur hækkað síðan. Verðið var um 61 dalur í byrjun febrúar en upp úr miðjum febrúar fór verðið að hækka nokkuð skarpt og var komið í 67 dali 22. febrúar. Verðið um þessar mundir er þó ekkert sérstaklega hátt í sögulegu samhengi, en meðalverð síðustu 10 ára er 80,4 dalir.

Lesa Hagsjána í heild

Hagsjá: Verð á olíu komið yfir 70 Bandaríkjadali (PDF)

Þú gætir einnig haft áhuga á
Sendibifreið og gámar
2. des. 2024
Vikubyrjun 2. desember 2024
Í síðustu viku bárust upplýsingar um að verðbólga hefði lækkaði úr 5,1% niður í 4,5% í nóvember og að landsframleiðslan hefði dregist saman um 0,5% að raunvirði á milli ára á þriðja ársfjórðungi. Í vikunni birtir Seðlabankinn tölur um viðskiptajöfnuð við útlönd, fundargerð peningastefnunefndar og yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar.
Lyftari í vöruhúsi
29. nóv. 2024
0,5% samdráttur á þriðja ársfjórðungi
Hagkerfið dróst saman á milli ára á þriðja ársfjórðungi, samkvæmt nýbirtum þjóðhagsreikningum Hagstofunnar. Verri afkoma þjónustuviðskipta við útlönd skýrir að stórum hluta samdráttinn á fjórðungnum. Innlend eftirspurn jókst um 0,8% milli ára og samneysla og aukin fjármunamyndun vógu þyngst til hækkunar.
29. nóv. 2024
Merki um minna framboð leiguhúsnæðis 
Skammtímaleiga í gegnum Airbnb hefur stóraukist eftir faraldurinn og framboð á íbúðum til langtímaleigu virðist hafa minnkað á móti. Þessi þróun gæti hafa átt þátt í að þrýsta upp leiguverðinu. Stærstur hluti Airbnb-íbúðanna er leigður út af leigusölum með fleiri en tvær íbúðir í útleigu.
28. nóv. 2024
Verðbólga yfir væntingum í nóvember
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,09% á milli mánaða í nóvember, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofu Íslands. Ársverðbólga lækkar því úr 5,1% í 4,8%, eða um 0,3 prósentustig. Reiknuð húsaleiga hafði mest áhrif til hækkunar vísitölunnar og flugfargjöld til útlanda mest áhrif til lækkunar.
Hús í Reykjavík
26. nóv. 2024
Rólegri taktur á íbúðamarkaði?
Nýjustu gögn af íbúðamarkaði benda til þess að lítillega hafi dregið úr eftirspurn. Grindavíkuráhrifin eru líklega tekin að fjara út og hugsanlega heldur fólk að sér höndum nú þegar vaxtalækkunarferlið er nýhafið og loks glittir í ódýrari fjármögnun. Verðið gæti tekið hratt við sér þegar vextir lækka af meiri alvöru.
Seðlabanki Íslands
25. nóv. 2024
Vikubyrjun 25. nóvember 2024
Seðlabankinn lækkaði stýrivexti um 0,5 prósentustig í síðustu viku, í takt við væntingar. Í þessari viku birtir Hagstofan verðbólgumælingu nóvembermánaðar en við eigum von á að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Á föstudag, þegar Hagstofan birtir þjóðhagsreikninga, kemur svo í ljós hvernig hagvöxtur þróaðist á þriðja ársfjórðungi.
Paprika
19. nóv. 2024
Mun verðbólga húrrast niður næstu mánuði? 
Við spáum því að verðbólga lækki nokkuð hratt allra næstu mánuði og í nýlegri verðbólguspá gerum við ráð fyrir að verðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar, sem er talsverð hjöðnun frá núverandi gildum. Það er því ágætt að staldra við og skoða hvaða þættir munu skýra lækkunina, gangi spá okkar eftir. 
Greiðsla
18. nóv. 2024
Vikubyrjun 18. nóvember 2024
Við gerum ráð fyrir því að peningastefnunefnd lækki vexti um 0,50 prósentustig á miðvikudaginn. Verðmælingar vegna nóvembermælingar vísitölu neysluverðs fóru fram í síðustu viku, en við spáum því að verðbólga hjaðni úr 5,1% niður í 4,5%. Tæplega 5% fleiri erlendir ferðamenn fóru um Keflavíkurflugvöll í október í ár en í fyrra og kortavelta þeirra hér á landi jókst um 5,4% miðað við fast verðlag. Kortavelta Íslendinga jókst um 6,8% að raunvirði á milli ára í október.
14. nóv. 2024
Spáum vaxtalækkun um 0,5 prósentustig í næstu viku
Verðbólga hefur hjaðnað nokkuð kröftuglega á síðustu mánuðum og við spáum því að hún mælist 4,5% í nóvember. Loks má greina merki um hægari gang í neyslu heimilanna og íbúðaverð virðist vera á minna flugi en áður. Þá virðist eftirspurn eftir vinnuafli hafa minnkað auk þess sem hægt hefur á launahækkunum. Peningalegt aðhald hefur aukist statt og stöðugt og landsframleiðsla gæti orðið lítillega minni á þessu ári en því síðasta.
Epli
14. nóv. 2024
Spáum 4,5% verðbólgu í nóvember
Við spáum því að vísitala neysluverðs lækki um 0,13% á milli mánaða í nóvember og að verðbólga hjaðni úr 5,1% í 4,5%. Flugfargjöld til útlanda og reiknuð húsaleiga koma til lækkunar að þessu sinni, en húsnæði án reiknaðrar húsaleigu til hækkunar. Við eigum von á áframhaldandi hjöðnun næstu mánuði og að ársverðbólga verði komin niður í 3,5% í febrúar á næsta ári.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur