Samantekt
<ð>Samkvæmt bráðabirgðamati Hagstofu Íslands dróst landsframleiðslan saman um 1,2% á fyrsta ársfjórðungi borið saman við sama tímabil í fyrra. Þetta er fyrsti samdráttur hagkerfisins síðan á fyrsta ársfjórðungi í fyrra. Að þessu sinni er samdrátturinn eingöngu til kominn vegna mikils samdráttar í útflutningi, um 17,2% milli ára. Framlag hans til hagvaxtar var neikvætt um 7,2%. Það sem helst hífir hagvöxtinn upp að þessu sinni var samdráttur í innflutningi en hann nam 10,2% og var framlag hans til hagvaxtar jákvætt um 3,3%.
Fyrsti fjórðungur gefur ekki góða mynd af því sem koma skal
Hér er rétt að benda á að niðurstaða fjórðungsins gefur ekki góða mynd af því sem flestir spáaðilar gera ráð fyrir að verði niðurstaðan fyrir árið í heild. Ástæðan er sú að efnahagslegra áhrifa Covid-19 fer ekki að gæta fyrr en seinni hluta marsmánaðar. Flestir spáaðilar gera ráð fyrir miklum samdrætti á þessu ári sögulega séð og mun meiri samdrætti en kom fram á fyrsta fjórðungi.
Lesa Hagsjána í heild
Hagsjá: Samdráttur landsframleiðslu á fyrsta ársfjórðungi (PDF)
![Epli](https://images.prismic.io/landsbankinn/04574322-2aa9-457d-a6ef-c31bea18abe6_Graen-epli.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![Evrópsk verslunargata](https://images.prismic.io/landsbankinn/e83ba1d5-c520-4007-8926-cb75f4fd86b8_iStock-1388039756-Holland-verslunargata.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![Hús í Reykjavík](https://images.prismic.io/landsbankinn/5024e55f-16d3-43f9-b606-ab01dbe5921f_hus-reykjavik-1920.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![Gönguleið](https://images.prismic.io/landsbankinn/33cdc5f2-10ba-4d29-a88e-3db117f83c02_Gullfoss-gonguleid.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![Fataverslun](https://images.prismic.io/landsbankinn/1da63ef3-f754-4e33-85b0-ae3d774b3971_Fataverslun.jpg?fit=max&w=3840&&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/a923b976-0b6c-45a6-b7b7-b7efbe46320a_Landsbankinn_Irma_Abstrakt_016.jpg?fit=max&w=3840&rect=397,396,745,559&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/028a0757-28f9-4183-b615-499104716808_Landsbankinn_Irma_Abstrakt_018.jpg?fit=max&w=3840&rect=0,140,1168,876&q=50)
![Litríkir bolir á fataslá](https://images.prismic.io/landsbankinn/0715ffd5-f0a2-446e-bbf1-561d88cd1730_Fataverslun-bolir-varasamt-kortagengi.jpg?fit=max&w=3840&rect=240,0,1440,1080&q=50)
![Flugvél á flugvelli](https://images.prismic.io/landsbankinn/c68d10e5-e50c-4447-8778-bd06a35cab8f_Jet-Brussels-iStock-1161966623.jpg?fit=max&w=3840&rect=1119,770,2455,1841&q=50)
![](https://images.prismic.io/landsbankinn/2fffc01a-44b7-44ee-bdc1-b8bd2c29c1ea_5.jpg?fit=max&w=3840&rect=55,0,1708,1281&q=50)