Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, fjórum kosnum af sjóðfélögum og einum skipuðum af bankaráði Landsbankans. Í varastjórn eru þrír menn, tveir kosnir af sjóðfélögum og einn skipaður af Landsbankanum. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn og einn varamann.
Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Tvö framboð bárust og er því sjálfkjörið í aðalstjórn.
Frambjóðendur í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins 28. apríl 2016 eru:
- Erla Ósk Ásgeirsdóttir
- Snorri Ómarsson
Kynning á frambjóðendum
Erla Ósk Ásgeirsdóttir, f. 1977
Erla Ósk er forstöðumaður starfsmanna-og gæðasviðs Icelandair hótela og situr í stjórn Félagsstofnunar stúdenta ásamt því að vera varamaður í stjórn Landssamtaka lífeyrissjóða. Erla er með MPA gráðu frá Háskóla Íslands auk B.A prófs í stjórnmálafræði frá sama skóla. Jafnframt hefur hún sótt námskeið um árangur og ábyrgð stjórnarmanna hjá Háskóla Reykjavíkur. Erla hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá árinu 2012.
Snorri Ómarsson, f. 1971
Snorri er starfandi flugstjóri hjá Icelandair. Lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands árið 1991, BS prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands árið 1999 og meistaraprófi í fjármálum fyrirtækja frá Háskólanum í Reykjavík árið 2011. Starfsmaður Icelandair frá 1998-2007 og aftur frá 2009. Starfsmaður í greiningardeild Landsbanka Íslands frá 2007-2009. Í sparisjóðsnefnd Félags íslenskra atvinnuflugmanna, FÍA, vorið 2013. Í trúnaðarráði flugmanna árið 2011-2012. Varamaður í starfsráði FÍA/Icelandair frá árinu 2012. Í samninganefnd FÍA frá árinu 2013-2015. Varamaður í stjórn Eftirlaunasjóðs atvinnuflugmanna frá 1999-2005. Snorri hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá júní 2011, og varaformaður stjórnar frá árinu 2013.