Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Árs­fund­ur Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins - fram­boð 2025

15. maí 2025

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 21. maí 2025 kl. 16 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.

Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára. Framboðum aðalmanna bar að skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Fjögur framboð bárust. Framboðsfrestur til varastjórnar rennur út á ársfundinum sjálfum.

Frambjóðendur í kjöri til aðalmanns í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins 21. maí 2025 eru:

Atli Atlason

Atli Atlason f. 1966, lauk stúdentsprófi frá Verslunarskóla Íslands 1986 og Cand. oecon prófi í viðskiptafræði frá Háskóla Íslands 1992. Starfaði sem forstöðumaður fjármála- og rekstrarsviðs Fiskistofu 1992-1999, forstöðumaður starfmannahalds Búnaðarbankans 1999-2003, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbanka Íslands hf. 2003-2008, framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankans 2008-2010, deildarstjóri kjaradeildar hjá Reykjavíkurborg 2012-2018 og er deildarstjóri kjaradeildar Landspítala frá 2018.  Hann var varaformaður stjórnar Lífeyrissjóðs bankamanna frá 2008 – 2012.  Atli hefur setið í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009, sem varaformaður stjórnar frá maí 2011 og formaður stjórnar frá febrúar 2013.

Guðrún Elsa Gunnarsdóttir

Guðrún Elsa Gunnarsdóttir, f. 1968, er framkvæmdastjóri Flóka Invest og fjármála- og rekstrarstjóri AZTIQ, þar sem hún hefur stýrt 50 félaga samstæðu og borið ábyrgð á bókhaldi, fjármálum, áætlanagerð og rekstri samstæðunnar. Áður var hún fjármálastjóri hjá Karli K. Karlssyni ehf., þar sem hún sá um fjármál fyrirtækisins, vann að fjárhagslegri og rekstrarlegri endurskipulagningu fyrirtækisins og hafði yfirumsjón með bókhaldi þess. Guðrún Elsa er með M.Sc. í Fjármálum fyrirtækja frá Háskóla Íslands og B.Sc. í Viðskiptafræði frá Háskólanum á Akureyri. Þá hefur hún lokið námi sem viðurkenndur stjórnarmaður hjá Akademias. 

Valur Ægisson

Valur Ægisson, f. 1984, er forstöðumaður viðskiptastýringar Landsvirkjunar. Lauk stúdentsprófi frá Verzlunarskóla Íslands 2004, B.Sc. í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands 2007 og M.Sc. í rekstarverkfræði frá Masdar Institute 2011. Próf í verðbréfaviðskiptum 2008. Námskeið um árangur og ábyrgð stjórnarmanna hjá Háskólanum í Reykjavík 2017. Starfaði áður í eignastýringu Landsbankans hf. og Íslandsbanka hf. Varamaður í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá 2014, í endurskoðunarnefnd sjóðsins 2018-2020 og fjárfestingaráði frá 2020.

Þórir Óskarsson

Þórir Óskarsson f. 1976, er tryggingastærðfræðingur Sjóvá. Lauk B.Sc. prófi í stærðfræði frá HÍ árið 2000 og stundaði nám í tryggingastærðfræði við Kaupmannahafnarháskóla 2003 til 2006 og lauk Cand. Act. prófi þaðan haustið 2006. Hann hlaut viðurkenningu FME sem tryggingastærðfræðingur 5. janúar 2009 og var sá fyrsti í 10 ár til að hljóta þá viðurkenningu. Starfaði hjá Vátryggingafélagi Íslands 2009-2020, m.a. sem forstöðumaður áhættustýringar og tryggingastærðfræðingur félagins. Starfaði sem tryggingastærðfræðingur hjá dönsku tryggingafélagi 2006-2009. Í stjórn Íslenska lífeyrissjóðsins frá október 2009 auk þess að sitja í endurskoðunarnefnd sjóðsins, formaður nefndarinnar frá 2011.

Þú gætir einnig haft áhuga á
New temp image
6. maí 2025
Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Á ársfundi Íslenska lífeyrissjóðsins sem haldinn verður miðvikudaginn 21. maí nk. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.
New temp image
30. apríl 2025
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 2025
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 21. maí 2025 kl. 16.00 í Landsbankanum Reykjastræti 6.
New temp image
15. maí 2024
Frambjóðendur í stjórnarkjöri Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 2024 kl. 16 í Landsbankanum, Reykjastræti 6.
New temp image
26. apríl 2024
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins 2024
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 21. maí 2024 kl. 16.00 í Landsbankanum Reykjastræti 6.
New temp image
19. maí 2023
Frambjóðendur í stjórnarkjöri Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17 í útibúi Landsbankans Austurstræti 11. Samkvæmt samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins er stjórn sjóðsins skipuð fimm mönnum, öllum kosnum af sjóðfélögum. Í varastjórn eru tveir menn. Að þessu sinni verður kosið um tvo aðalmenn til þriggja ára og einn varamann til þriggja ára.
New temp image
28. apríl 2023
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins
Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 24. maí 2023 kl. 17:00 í Landsbankanum Austurstræti 11.
New temp image
11. jan. 2023
Breyting á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur staðfest breytingar á réttindatöflum og samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins sem samþykktar voru á aukaársfundi sjóðsins þann 10. nóvember 2022. Nýjar samþykktir tóku gildi 1. janúar 2023.
New temp image
1. des. 2022
Breytingar á lögum um lífeyrissjóði og tengdum lögum sem taka gildi um áramót
Breytingar á lögum lögum um lífeyrissjóði og öðrum tengdum lagabálkum sem kunna að hafa áhrif á sjóðfélaga Íslenska lífeyrissjóðsins taka gildi um næstu áramót. Hér er yfirlit yfir helstu breytingar:
New temp image
30. nóv. 2022
Fundargerð aukaársfundar Íslenska lífeyrissjóðsins 2022
Aukaársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins var haldinn þann 10. nóvember 2022 í Landsbankanum, Austurstræti 11, Reykjavík.
New temp image
27. okt. 2022
Tillögur til breytinga á samþykktum Íslenska lífeyrissjóðsins
Á aukaársfundi Íslenska lífeyrissjóðsins, sem haldinn verður fimmtudaginn 10. nóvember n.k. verða meðfylgjandi tillögur til breytinga á samþykktum sjóðsins lagðar fram.