Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Árs­fund­ur Ís­lenska líf­eyr­is­sjóðs­ins 2025

30. apríl 2025

Ársfundur Íslenska lífeyrissjóðsins verður haldinn miðvikudaginn 21. maí 2025 kl. 16.00 í Landsbankanum Reykjastræti 6.

Allir sjóðfélagar og rétthafar eiga rétt til setu á ársfundinum. Dagskrá fundarins er samkvæmt samþykktum sjóðsins:

1.       Skýrsla stjórnar

2.       Kynning á ársreikningi

3.       Gerð grein fyrir fjárfestingarstefnu sjóðsins

4.       Gerð grein fyrir tryggingafræðilegri athugun

5.       Kosning í stjórn

6.       Kosning endurskoðanda

7.       Tillögur um breytingar á samþykktum

8.       Laun stjórnarmanna

9.       Önnur mál

Tillögur um breytingar á samþykktum þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti tveimur vikum fyrir ársfund. Tillögur til ályktana sem taka á fyrir á ársfundi þurfa að berast stjórn með skriflegum hætti viku fyrir ársfund. Framboðum aðalmanna til stjórnar skal skila inn til stjórnar viku fyrir ársfund. Að þessu sinni verða kosnir tveir aðalmenn til þriggja ára og einn varamaður til þriggja ára. Tillögur og framboð aðalmanna skulu berast til stjórnar Íslenska lífeyrissjóðsins, Reykjastræti 6, 101 Reykjavík. Tillögur að breytingum á samþykktum og framboð aðalmanna til stjórnar verða birt á vefsvæði sjóðsins, islenskilif.is, viku fyrir fundinn.

Allar nánari upplýsingar má nálgast á vef sjóðsins eða hjá Verðbréfa- og lífeyrisþjónustu Landsbankans í síma 410 4040.