Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Takk fyr­ir kom­una á off-venue tón­leika Lands­bank­ans og Ice­land Airwaves

Fjölmargir lögðu leið sína á off-venue tónleika Landsbankans á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Hátíðin hefur frá upphafi verið mikilvæg viðbót við íslenskt menningarlíf og ómetanlegur vettvangur fyrir íslenska tónlist. Sjá myndir frá tónleikunum.
6. nóvember 2017

Fjölmargir lögðu leið sína á off-venue tónleika Landsbankans á Iceland Airwaves hátíðinni í ár. Hátíðin hefur frá upphafi verið mikilvæg viðbót við íslenskt menningarlíf og ómetanlegur vettvangur fyrir íslenska tónlist.

Landsbankinn stóð fyrir tvennum tónleikum  í Stúdentakjallaranum í samstarfi við Félagsstofnun stúdenta þar sem fram komu rappararnir Birnir og Floni, hljómsveitin GDRN og Dj B-ruff and friends. Undanfarin ár hafa fjölmennir tónleikar verið haldnir í útibúinu í Austurstræti og í ár stigu þar á svið hljómsveitirnar Between Mountains og GDRN, ásamt röppurunum Joey Christ og Birni. Sá síðastnefndi kom einnig fram á tónleikum í útibúi Landsbankans á Akureyri en þetta er í fyrsta sinn sem boðið er upp á off- venue tónleika þar.

Landsbankinn þakkar öllum kærlega fyrir komuna en bankinn hefur verið einn af aðalbakhjörlum hátíðarinnar frá árinu 2014.

Iceland Airwaves vefsvæði Landsbankans

Umræðan: Gullöld íslenska rappsins er núna

oembed

Myndir á Facebook frá off venue tónleikum Landsbankans

Þú gætir einnig haft áhuga á
1. júlí 2025
Útibú TM og Landsbankans á Selfossi sameinast
Útibú TM og Landsbankans á Selfossi sameinast í dag, þriðjudaginn 1. júlí 2025, undir einu þaki í Landsbankahúsinu við Austurveg 20. Þar með geta viðskiptavinir sótt sér trygginga- og bankaþjónustu á einum og sama staðnum.
Reykjastræti
19. júní 2025
Útibú TM er flutt í Reykjastræti 6
Útibú TM á höfuðborgarsvæðinu flutti í dag, 19. júní 2025, í útibú Landsbankans í Reykjastræti 6 í miðborg Reykjavíkur. Þar tekur starfsfólk TM og bankans vel á móti viðskiptavinum.
Yayland
4. júní 2025
YAY og Landsbankinn stofna nýtt félag – Yayland
Fjártæknifyrirtækið YAY og Landsbankinn hafa stofnað nýtt félag, Yayland ehf., sem mun sérhæfa sig í þróun, sölu, útgáfu og rekstri á stafrænum og hefðbundnum inneignarkortum, gjafabréfum og vildarkortum. Yayland mun taka yfir alla gjafakortastarfsemi YAY á Íslandi og jafnframt alla útgáfu og rekstur á inneignarkortum Landsbankans.
Námsstyrkir 2025
3. júní 2025
8 milljónum úthlutað í námsstyrki
Landsbankinn úthlutaði námsstyrkjum til sextán hæfileikaríkra námsmanna úr Samfélagssjóði bankans þann 28. maí. Námsstyrkirnir voru veittir í þrítugasta og sjötta sinn og heildarupphæð styrkjanna nemur átta milljónum króna. Alls bárust um 450 umsóknir í ár.
Skólahreysti 2025
26. maí 2025
Holtaskóli bar sigur úr býtum í Skólahreysti 2025
Holtaskóli er sigurvegari Skólahreysti 2025 og ber því titillinn Skólahreystimeistari með rentu! Úrslitin réðust í æsispennandi lokakeppni tólf grunnskóla fyrir troðfullum sal í íþróttamiðstöðinni að Varmá í Mosfellsbæ, laugardagskvöldið 24. maí.
Landsbankinn
23. maí 2025
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum inn- og útlána og tekur ný vaxtatafla gildi 3. júní 2025.
Nasdaq bjalla
16. maí 2025
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans ráðgjafi ríkisins í vel heppnuðu Íslandsbankaútboði
Áhugi fjárfesta reyndist mjög mikill og skilaði sér í heildareftirspurn upp á um 190 milljarða króna. Sérstaklega ánægjulegt var að sjá mikinn áhuga og þátttöku almennings. Í útboðinu voru seldir 850.000.007 hlutir á genginu 106,56 krónur á hlut, sem samsvarar heildarvirði upp á 90,6 milljarða króna. Þetta er stærsta hlutafjárútboð sem haldið hefur verið á Íslandi.
Austurstræti 11
15. maí 2025
Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 til sölu
Landsbankinn auglýsir til sölu hús bankans við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 í Reykjavík. Heildarstærð húsanna er 5.836 fermetrar og þar ef eru 1.380 fermetrar í kjallara. Húsin verða seld í einu lagi.
Nasdaq bjalla
13. maí 2025
Upplýsingar um útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka
Útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst kl. 8.30 þriðjudaginn 13. maí og gert er ráð fyrir að því ljúki kl. 17.00 fimmtudaginn 15. maí.
Austurbakki
28. apríl 2025
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í A-
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að lánshæfismat Landsbankans til langs tíma hefði verið hækkað úr BBB+ í A-. Lánshæfismatið hefur ekki verið hærra frá árinu 2014, þegar S&P hóf að veita bankanum lánshæfiseinkunnir.