Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Aust­ur­stræti 11 og Hafn­ar­stræti 10, 12 og 14 til sölu

Austurstræti 11
15. maí 2025

Landsbankinn auglýsir til sölu hús bankans við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14 í Reykjavík. Heildarstærð húsanna er 5.836 fermetrar og þar ef eru 1.380 fermetrar í kjallara. Húsin verða seld í einu lagi.

Landsbankahúsið við Austurstræti 11 er eitt glæsilegasta hús borgarinnar. Húsið var reist árið 1898 en var endurbyggt og stækkað árið 1924 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar sem teiknaði jafnframt allar innréttingar. Viðbygging við húsið var tekin í notkun árið 1940. Austurstræti 11 var friðað árið 1991 og nær friðunin yfir ytra byrði hússins, vegglistaverk og innréttingar sem voru gerðar árið 1924.

Hafnarstræti 10-12 gekk áður undir nafninu Edinborgarhúsið og var byggt árið 1923 eftir uppdráttum Einars Erlendssonar. Húsið var upphaflega þrjár hæðir en fjórðu hæðinni var síðar bætt ofan á. Hafnarstræti 14 var reist árið 1970. Jarðhæðin er tengd við afgreiðslusal Austurstrætis 11.

Landsbankinn flutti árið 2023 starfsemi sína úr alls 12 húsum við Austurstræti, Hafnarstræti og Tryggvagötu yfir í ný húsakynni við Reykjastræti 6. Íslenska ríkið lýsti á sínum tíma yfir áhuga á að kaupa Austurstræti 11 en nú er ljóst að ekki verður af kaupunum.

Salan er í höndum Eignamiðlunar og Mikluborgar. Nánari upplýsingar er hægt að fá með því að senda tölvupóst á netfangið kjartan@eignamidlun.is eða throstur@miklaborg.is. Óskað er eftir tilboðum.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Nasdaq bjalla
13. maí 2025
Upplýsingar um útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka
Útboð á hlutum ríkisins í Íslandsbanka hófst kl. 8.30 þriðjudaginn 13. maí og gert er ráð fyrir að því ljúki kl. 17.00 fimmtudaginn 15. maí.
Austurbakki
28. apríl 2025
S&P hækkar lánshæfismat Landsbankans í A-
Alþjóðlega lánshæfismatsfyrirtækið S&P Global Ratings tilkynnti í dag að lánshæfismat Landsbankans til langs tíma hefði verið hækkað úr BBB+ í A-. Lánshæfismatið hefur ekki verið hærra frá árinu 2014, þegar S&P hóf að veita bankanum lánshæfiseinkunnir.
16. apríl 2025
Þjónusta um páskana – appið og Ellí loka ekki
Útibú og þjónustuver Landsbankans verða að venju lokuð um páskana og opna næst þriðjudaginn 22. apríl nk.
9. apríl 2025
Hagspá til 2027: Ágætis horfur en allt getur breyst
Greiningardeild Landsbankans gaf í dag út hagspá til ársins 2027. Greiningardeildin spáir því að hagvöxtur verði 1,4% í ár og 2,1% á næsta ári. Óvissan hefur sjaldan verið meiri og því má segja að hagspáin gildi þar til annað kemur í ljós. 
8. apríl 2025
Húsfyllir í Landsbankanum á HönnunarMars
Húsfyllir var í Landsbankanum á HönnunarMars föstudaginn 4. mars og stemningin var ótrúlega skemmtileg. Dagskráin byrjaði á samtali um fjárfestingar í hönnun og um kvöldið var ungum og upprennandi fatahönnuðum gefið sviðið.
Fjölskylda úti í náttúru
7. apríl 2025
Úrræði að renna út hjá mörgum - viðbótarlífeyrissparnaður og fyrstu kaup
Þau sem kaupa sína fyrstu fasteign geta notað viðbótarlífeyrissparnað í 10 ár til að greiða skattfrjálst inn á íbúðalánið sitt. Þar sem nú eru rúmlega 10 ár liðin frá því lög voru fyrst sett um þetta úrræði er það að renna út hjá sumum, hafi það ekki þegar gerst.
Landsbankinn
27. mars 2025
Afgreiðslan á Seyðisfirði færist til Egilsstaða
Þjónusta afgreiðslu Landsbankans á Seyðisfirði mun færast til útibúsins á Egilsstöðum föstudaginn 4. apríl nk.
27. mars 2025
Vel heppnaður fundur um hvernig hægt er að finna milljón
Hátt í 200 manns sóttu fræðslufund um fjármál sem haldinn var í Landsbankanum Reykjastræti þar sem rætt var um hvernig hægt er að finna milljón með því að draga úr útgjöldum eða auka tekjur.
Eystra horn
27. mars 2025
Hagnaður Landsbréfa 1.272 milljónir á árinu 2024
Landsbréf hf. hafa birt ársreikning vegna ársins 2024. 
HönnunarMars 2025
26. mars 2025
Fjölbreyttur HönnunarMars 2025 í Landsbankanum
Landsbankinn er einn af aðalstyrktaraðilum HönnunarMars og tekur þátt í hátíðinni með virkum hætti. Haldnir verða spennandi viðburðir í bankanum í Reykjastræti og við höfum gert myndbönd um sjö hönnuði sem birtast á Youtube-rás bankans.