Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­banka­hús­ið við Aust­ur­veg á Sel­fossi til sölu

Hús Landsbankans við Austurveg 20 á Selfossi hefur verið auglýst til sölu. Húsið var reist á árunum 1949-1953 og hefur löngum verið talið eitt fallegasta húsið á Suðurlandi. Breytingar á bankaþjónustu valda því að útibúið þarf nú minna húsnæði undir starfsemi sína. Gert er ráð fyrir að útibúið verði áfram í húsinu þar til að starfsemi þess getur hafist á nýjum stað á Selfossi.
30. október 2020

Breytingar á bankaþjónustu valda því að útibúið þarf nú minna húsnæði undir starfsemi sína. Gert er ráð fyrir að útibúið verði áfram í húsinu þar til að starfsemi þess getur hafist á nýjum stað á Selfossi.

Landsbankinn opnaði útibú í Tryggvaskála á Selfossi árið 1918 en flutti árið eftir í eigið húsnæði að Austurvegi 21. Þar var útibúið til ársins 1953 þegar það flutti í núverandi húsakynni. Landsbankahúsið á Selfossi er byggt eftir frumteikningum Guðjóns Samúelssonar en honum entist ekki aldur til að fylgja verkinu eftir því hann lést árið 1950. Húsið er allt hið veglegasta en auk þess að hýsa bankastarfsemi voru í húsinu tvær íbúðir. Önnur í vesturenda annarrar hæðar ætluð útibússtjóra og hin ætluð húsverði í austurenda kjallarans. Samkomusalur og kaffistofa voru á rishæð. Austurendi annarrar hæðar var leigður út fyrstu árin.

Húsið hefur frá upphafi hlotið gott viðhald. Grunnflötur hússins er rúmlega 300 m2 en samtals er skráð stærð hússins, að kjallara og risi meðtöldu 1.137 m2, auk 77 m2 bílskúrs. Efri hæðin er í útleigu. Lóð hússins er rúmlega 7.300 m2.

Árborgir fasteignasala og Lögmenn Suðurlandi annast söluna. Landsbankinn áskilur sér rétt til að hafna öllum tilboðum.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Landsbankinn
21. ágúst 2026
Landsbankinn breytir vöxtum
Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Vaxtabreytingarnar taka gildi fimmtudaginn 27. ágúst 2026, með þeim undantekningum sem tilgreindar eru hér að neðan.
19. ágúst 2026
Fjölskyldufjör og tónleikar á Menningarnótt
Menningarnótt verður haldin hátíðleg í miðborg Reykjavíkur laugardaginn 22. ágúst. Landsbankinn hefur verið stoltur þátttakandi og máttarstólpi Menningarnætur frá upphafi og býður að vanda upp á fjölbreytta og skemmtilega dagskrá.
18. ágúst 2026
Landsbankinn 140 ára og TM 70 ára – komdu í afmælisveislu!
Landsbankinn fagnar 140 ára afmæli og TM 70 ára afmæli um þessar mundir. Af því tilefni bjóðum við landsmönnum að fagna með okkur í útibúum Landsbankans um allt land fimmtudaginn 20. ágúst kl. 14.00–16.00.
5. ágúst 2026
Tólf hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans
Tólf atriði hlutu styrk úr Gleðigöngupotti Hinsegin daga og Landsbankans vegna Gleðigöngunnar 2026. Hinsegin dagar voru settir þriðjudaginn 4. ágúst en hápunkturinn er Gleðigangan, sem gengin verður laugardaginn 8. ágúst nk.
Austurbakki
4. ágúst 2026
Leiðréttingar vegna tvíbókaðra færslna
Því miður lentu margir viðskiptavinir í því fyrir helgi að færslur voru tvíbókaðar á kortin þeirra. Búið er að leiðrétta þessa tvíbókun en við vinnum nú hörðum höndum að því að yfirfara og endurgreiða ef kostnaður myndaðist vegna þessara færslna.
Austurbakki
31. júlí 2026
Tvíbókaðar færslur á greiðslukortum
Tvöfaldar færslur á greiðslukortum hafa nú verið leiðréttar. Í sumum tilvikum sjást þær enn á yfirlitum kreditkorta en það hefur ekki áhrif á ráðstöfun og mun uppfærast von bráðar.
24. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi Bláa Lónsins
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hafði umsjón með ráðgjöf til Bláa Lónsins hf. vegna kaupa félagsins á Arctic Adventures hf. og aukinnar fjárfestingar í þremur baðlónum.
8. júlí 2026
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annast skráningu Styrkáss
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans hefur verið valin til að hafa umsjón með skráningu Styrkáss hf. á Aðalmarkað Nasdaq Iceland. Um er að ræða mikilvægt verkefni fyrir Landsbankann en ekki síður fyrir íslenskan hlutabréfamarkað.
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 mö.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.