Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur

Ár­s­verð­bólg­an úr 9,8% í 9,9%

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,31% milli mánaða í apríl og við það hækkaði ársverðbólgan úr 9,8% í 9,9%. Verð á bílum lækkaði minna en við gerðum ráð fyrir og íbúðaverð lætur finna fyrir sér aftur.
Epli
27. apríl 2023

Vísitala neysluverðs hækkaði um 1,31% milli mánaða í apríl, samkvæmt nýbirtum tölum Hagstofunnar. Ársverðbólgan hækkar því og fer úr 9,8% í 9,9%. Smávægileg breyting varð á samsetningu verðbólgunnar en framlag bensíns dróst saman á meðan framlag húsnæðis til ársverðbólgu jókst á milli mánaða. Hækkunin milli mánaða var töluvert meiri en við bjuggumst við; við spáðum 1% hækkun milli mánaða og 9,5% ársverðbólgu. Spáskekkjan fólst aðallega í því að reiknaða húsaleigan hækkaði meira en við höfðum gert ráð fyrir og verð á nýjum bílum lækkaði minna.

Reiknaða húsaleigan hækkar töluvert

Íbúðamarkaður minnir á sig og reiknaða leigan, sem endurspeglar kostnaðinn við það að búa í eigin húsnæði, hækkar um 2,5% á milli mánaða. Við höfðum spáð 2,1% hækkun og munar þar mestu um að íbúðaverð á landsbyggðinni hækkaði meira en við höfðum gert ráð fyrir eða um tæplega 3% milli mánaða, en vísitalan byggir á þriggja mánaða hlaupandi meðaltali mánaðarlegra gagna. Íbúðaverð á landinu öllu hækkaði því um 1,8% og áhrif vaxta voru 0,7 prósentustig til hækkunar, aðeins minna en við höfðum spáð. Íbúðaverð á landsvísu hækkar annan mánuðinn í röð, eftir að hafa lækkað þrjá mánuði í röð þar á undan. 

Nánar um helstu undirliði:

  • Verð á mat- og drykkjarvörum hækkaði um 1,5% (0,23% áhrif til hækkunar) á milli mánaða. Tæplega helming þeirrar hækkunar má rekja til hækkunar á mjólkurvörum sem kemur í kjölfar ákvörðunar verðlagsnefndar búvara. Við höfðum spáð 2% hækkun.
  • Verð á húsgögnum og heimilisbúnaði hækkaði um 1,9% (0,12% áhrif til hækkunar) sem skýrist líklega af því að tilboð frá því í mánuðinum á undan gengu til baka.  Við höfðum spáð því að liðurinn myndi hækka um 1,5%.
  • Flugfargjöld til útlanda hækkuðu um 19,5% (0,35% áhrif til hækkunar). Flugfargjöld hækka alla jafna í kringum páska og við höfðum gert ráð fyrir 16% hækkun sem er ekki fjarri mælingunni.
  • Reiknuð húsaleiga samanstendur af markaðsverði húsnæðis á landinu öllu ásamt framlagi vaxtabreytinga. Sem fyrr segir hækkaði liðurinn í heild um 2,5% (0,46% áhrif til hækkunar) milli mánaða en við höfðum spáð hækkun um 2,1%. Hækkun íbúðaverðs á landinu öllu var 1,8% en við höfðum gert ráð fyrir 1.2% hækkun. Framlag vaxtabreytinga var nokkurn veginn í takt við okkar væntingar, örlítið minna.  

Hlutfall undirliða sem hafa hækkað meira en 10% stendur í stað

Hlutfall undirliða sem hafa hækkað um meira en 10% stendur í stað á milli mánaða, en í síðasta mánuði lækkaði þetta hlutfall. Á móti hefur hlutfall liða sem hækkaði á milli 5 og 10% hækkað milli mars og apríl.

Samsetning á verðbólgunni breytist lítillega milli mánaða

Af 9,9% verðbólgu er hlutur húsnæðis 3,3 prósentustig í apríl, og eykst frá síðasta mánuði. Hlutur innfluttra vara án bensíns hækkaði líka úr 2,2 prósentustigum í 2,3. Hlutur bensíns lækkar í 0,2 prósentustig, úr 0,3 prósentustigum, og hlutur innlendra vara lækkar í 1,6 prósentustig, úr 1,8 prósentustigum. Þá lækkar hlutur þjónustu í 2,4 prósentustig, úr 2,3 prósentustigum. Borið saman við apríl í fyrra, þegar verðbólgan var 7,2%, má sjá að mestar hækkanir hafa verið í innfluttum vörum án bensíns og í þjónustu. Hlutur húsnæðis í ársverðbólgunni í fyrra, sem var 7,2%, var um 3 prósentustig og hefur lítið breyst síðan þá.

Spá okkar til næstu mánaða breytist lítillega

Við breytum spá okkar um ársverðbólgu til næstu þriggja mánaða örlítið vegna þessara talna. Munurinn á mælingu Hagstofunnar og spá okkar fyrir apríl var meðal annars sú að verð á nýjum bílum lækkaði minna en við gerðum ráð fyrir. Við gerum ennþá ráð fyrir því að verð á nýjum bílum lækki lítillega en það gerist síðar.  Við spáum núna að verðbólgan mælist 9,5% í maí, 8,8% í júní og 7,8% í júlí.

Fyrirvari
Innihald og form þessarar greiningar er unnið af starfsfólki Hagfræðideildar Landsbankans hf. (hagfraedideild@landsbankinn.is) og byggist á aðgengilegum opinberum upplýsingum á þeim tíma sem greiningin var unnin. Mat á þeim upplýsingum endurspeglar skoðanir starfsfólks Hagfræðideildar Landsbankans á þeim degi þegar greiningin er dagsett, en þær geta breyst án fyrirvara.

Landsbankinn hf. og starfsfólk hans taka ekki ábyrgð á viðskiptum sem byggð eru á þeim upplýsingum og skoðunum sem hér eru settar fram, enda eru þær ekki veittar sem persónuleg ráðgjöf fyrir einstök viðskipti.

Bent skal á að Landsbankinn hf. getur á hverjum tíma haft beinna eða óbeinna hagsmuna að gæta, ýmist sjálfur, dótturfélög hans eða fyrir hönd viðskiptavina, s.s. sem fjárfestir, lánardrottinn eða þjónustuaðili. Greiningar eru engu að síður unnar sjálfstætt af Hagfræðideild Landsbankans og innan Landsbankans eru í gildi reglur um aðskilnað starfssviða sem eru aðgengilegar á vef bankans.
Þú gætir einnig haft áhuga á
17. apríl 2026
Hagspá til 2028: Hagkerfi í hægum vexti
Horfur eru á að sú kólnun sem hefur verið í hagkerfinu undanfarið muni vara lengur en áður var spáð. Við sjáum merki um slaka á vinnumarkaði með auknu atvinnuleysi og minni eftirspurn fyrirtækja eftir starfsfólki. Hærri stýrivextir munu valda því að sú staða vari lengur en ella.
Verðbólga
16. apríl 2026
Spáum 5,5% verðbólgu í apríl
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 1,05% á milli mánaða í apríl. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,4% í 5,5%. Hærra eldsneytisverð og hækkun flugfargjalda hafa mest áhrif á hækkun á milli mánaða samkvæmt spánni. Lægri virðisaukaskattur á eldsneyti mun skila tímabundinni lækkun á eldsneytisverði, en áfram er töluverð óvissa um þróun olíuverðs og heildaráhrifa á verðbólgu hér á landi.
Vikubyrjun
13. apríl 2026
Vikubyrjun 13. apríl 2026
Erlendum ferðamönnum fjölgaði um 1,6% á milli ára í mars. Utanlandsferðum Íslendinga hefur fækkað á milli ára alla mánuði ársins. Skráð atvinnuleysi minnkaði um 0,1 prósentustig á milli mánaða og mælist nú 4,8% í mars. Verðbólga í Bandaríkjunum jókst úr 2,4% í 3,3% í mars.
Mánaðamót 2
1. apríl 2026
Mánaðamót 1. apríl 2026
Mánaðarlegt fréttabréf frá Greiningardeild um nýjustu hagtölur og stöðu og horfur í efnahagsmálum.
Vikubyrjun
30. mars 2026
Vikubyrjun 30. mars 2026
Verðbólga jókst úr 5,2% í 5,4% í mars, svo há hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Vísitala launa lækkaði um 0,1% á milli mánaða í febrúar. Í síðustu viku birti Seðlabankinn yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar ásamt ritinu Fjármálastöðugleiki og fjármálaráðherra lagði fram fjármálaáætlun.
Mánaðamót 4
26. mars 2026
Verðbólga eykst í 5,4% - hærra eldsneytisverð skýrir hækkunina
Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,55% eins og við spáðum og mælist nú 5,4%. Svo mikil hefur verðbólga ekki mælst síðan í september 2024. Hækkun á verðbólgu á milli mánaða skýrist að langmestu leyti af hækkun á eldsneytisverði sem rekja má til átakanna við Persaflóa.
Vikubyrjun
23. mars 2026
Vikubyrjun 23. mars 2026
Peningastefnunefnd hækkaði vexti um 0,25 prósentustig í síðustu viku. Mun harðari tónn var í yfirlýsingu nefndarinnar en við síðustu ákvörðun í febrúar. Heildarkortavelta heimilanna jókst um 1,5% á milli ára, en kortavelta innanlands dróst saman. Vísitala íbúðaverðs hækkaði lítillega eftir mikla hækkun í janúar.
Vikubyrjun
16. mars 2026
Vikubyrjun 16. mars 2026
Við spáum því að peningastefnunefnd hækki vexti á miðvikudaginn. Verðbólguhorfur hafa versnað upp á síðkastið sem sést meðal annars í niðurstöðum úr könnun á verðbólguvæntingum heimila og fyrirtækja sem Seðlabankinn birti í síðustu viku. Við hækkuðum einnig verðbólguspá okkar í síðustu viku.
Stýrivextir
12. mars 2026
Spáum hækkun stýrivaxta í næstu viku 
Við spáum því að í næstu viku muni peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hækka vexti um 0,25 prósentustig. Verðbólga hefur aukist meira en spár gerðu ráð fyrir og verðbólguvæntingar hafa einnig aukist. Ólga hefur aukist á alþjóðlegum mörkuðum vegnastríðsátaka í Mið-Austurlöndum sem eykur verðbólguþrýsting. 
Mánaðamót 4
12. mars 2026
Spáum 5,4% verðbólgu í mars
Við spáum því að vísitala neysluverðs hækki um 0,55% á milli mánaða í mars. Gangi spáin eftir mun verðbólga hækka úr 5,2% í 5,4%. Hærra eldsneytisverð, sem rekja má til átakanna í Mið-Austurlöndum, skýrir að stærstum hluta þá hækkun verðbólgu á milli mánaða sem við spáum. Óljóst er hversu lengi átökin munu standa yfir og hversu langvinn áhrifin á verðbólgu hér á landi verða. Mikið er undir verðbólgumælingum næstu mánaða en forsendur í kjarasamingum á almennum vinnumarkaði byggja á að verðbólga mælist undir 4,7% í ágúst, eða að hún mælist að meðaltali undir 4,4% sex mánuði þar á undan. Auknar líkur eru á því að þær forsendur haldi ekki.