Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Tveir fengu út­hlut­að úr Hvata­sjóði Lands­bank­ans

10. september 2026

Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.

Sjóðurinn styrkir nemendur sem hafa annað móðurmál en íslensku og náð hafa góðum árangri í framhaldsskóla. Við val á styrkhöfum er tekið mið af námsárangri auk fjölbreytileika og þátttöku nemenda á öðrum sviðum, t.d. íþróttum, tómstundastarfi og sjálfboðavinnu.  Styrkurinn felur í sér niðurfellingu á skólagjöldum fyrsta árið í grunnnámi.

Samstarf Landsbankans og Háskólans í Reykjavík á vettvangi Hvatasjóðs hófst árið 2023 og eru styrkir veittir árlega. Markmið sjóðsins er að jafna aðgengi að námi við HR.

Úthlutun úr Hvatasjóðnum fór fram við hátíðlega athöfn 27. ágúst sl. í húsnæði HR þar sem Sigríður Guðmundsdóttir, mannauðsstjóri Landsbankans, afhenti styrkina ásamt dr. Bryndísi Björk Ásgeirsdóttur, sviðsforseta samfélagssviðs. Þá flutti dr. Ragnhildur Helgadóttir, rektor HR, ávarp við upphaf athafnarinnar.

Við óskum styrkþegunum, Salvador og Oliwia, til hamingju með árangurinn og góðs gengis í framtíðinni!

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.