Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Lands­bank­inn breyt­ir vöxt­um

Landsbankinn
23. mars 2026

Landsbankinn breytir vöxtum á innlánum og útlánum. Breytingar á föstum vöxtum á nýjum íbúðalánum taka gildi mánudaginn 23. mars 2026. Aðrar vaxtabreytingar taka gildi föstudaginn 27. mars 2026. Helstu breytingar eru eftirfarandi:

Vextir á íbúðalánum

  • Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Fastir vextir til 12 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,35 prósentustig.
  • Fastir vextir til 36 mánaða á nýjum óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Fastir vextir til 60 mánaða á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,15 prósentustig.
  • Fastir vextir á nýjum verðtryggðum íbúðalánum lækka um 0,25 prósentustig. 

Aðrir útlánavextir

  • Kjörvextir á óverðtryggðum lánum hækka um 0,25 prósentustig.
  • Yfirdráttarvextir hækka um 0,25 prósentustig.

Innlánavextir

  • Vextir á sparireikningum í appi hækka um 0,25 prósentustig.
  • Vextir á öðrum óverðtryggðum sparireikningum hækka um allt að 0,25 prósentustig.
  • Vextir á óverðtryggðum fastvaxtareikningum hækka um allt að 0,35 prósentustig.
  • Vextir á reikningum í erlendri mynt taka mið af vaxtastigi viðkomandi myntar.

Breytingarnar eru gerðar í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 18. mars sl. en þá hækkaði Seðlabankinn meginvexti um 0,25 prósentustig.

Breytingar á vöxtum útlána sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka. Breytingar á vöxtum greiðslureikninga sem falla undir lög um greiðsluþjónustu taka gildi að tveimur mánuðum liðnum í samræmi við skilmála sem gilda um þá reikninga.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.