Fréttir
Fjármálamót: Hvað viltu vita um fjármál og bankaþjónustu á Íslandi?
Landsbankinn og Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis (VSFK) standa fyrir fræðslufundi á pólsku um sparnað, lífeyrismál, húsnæðislán og netöryggi.

22. febrúar 2024
Fundurinn verður haldinn miðvikudaginn 28. febrúar 2024 kl. 18.00-19.00 í salnum á 5. hæð í Krossmóum 4a, Reykjanesbæ.
Dagskrá
- Guðbjörg Kristmundsdóttir, formaður VSFK, setur fundinn (erindið verður á ensku).
- Klaudia Karína Stefanska, þjónustufulltrúi í útibúi Landsbankans í Grafarholti, fjallar um það helsta sem þú þarft að vita um möguleika í sparnaði, lífeyrismálum og húsnæðislánum.
- Agnieszka Marzok, sérfræðingur í alþjóðlegri greiðslumiðlun hjá Landsbankanum, fjallar um aukna hættu af netsvikum og hvernig best er að verjast þeim.
Fundurinn verður haldinn á pólsku.
Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir.
Boðið verður upp á létta hressingu í upphafi fundar.
Þú gætir einnig haft áhuga á

14. okt. 2026
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.

13. okt. 2026
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.

2. okt. 2026
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.

29. sept. 2026
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.

10. sept. 2026
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.