Fréttir

Lands­bréf skila góð­um ár­angri á fyrri hluta árs­ins

Eystra horn
22. ágúst 2023 - Landsbankinn

Landsbréf hf. hafa birt árshlutareikning fyrir fyrri hluta ársins 2023.

Helstu niðurstöður voru þessar:

  • Hagnaður Landsbréfa eftir skatta var tæpar 483 milljónir króna á fyrri hluta ársins 2023 samanborið við tæpar 448 milljónir króna fyrir sama tímabil árið áður.  
  • Hreinar rekstrartekjur námu 1.182 milljónum króna á fyrri hluta ársins samanborið við 1.059 milljón króna fyrir sama tímabil árið áður.
  • Eigið fé í lok tímabils var 3.566 milljónir króna samanborið við 3.783 milljónir króna í árslok 2022, en félagið greiddi móðurfélagi sínu, Landsbankanum, 700 milljón króna arðgreiðslu í maí síðastliðnum. Eiginfjárhlutfall Landsbréfa var 80,94% við lok tímabilsins.

Helgi Þór Arason, framkvæmdastjóri Landsbréfa:

„Rekstur Landsbréfa gekk vel á tímabilinu. Hagnaður var um 483 m. kr. og endurspeglar traustan rekstur félagsins.  Markaðsaðstæður hafa verið krefjandi, einkum á innlendum verðbréfamarkaði. Verðbólga hefur verið há og vaxtastig farið hækkandi. Þrátt fyrir það hefur takturinn í hagkerfinu verið öflugur og hef ég fulla trú á því að næstu mánuði muni verðbólga fara hjaðnandi og hagkerfið nái sæmilega mjúkri lendingu. Það eru að mörgu leyti krefjandi tímar á eignamörkuðum og skiptir miklu máli að vandað sé til verka við ávöxtun fjármuna. Það er verkefni sem Landsbréf taka alvarlega, enda hafa Landsbréf um árabil skilað fjárfestum í sjóðum félagsins góðri ávöxtun og reynt starfsfólk félagsins mun halda áfram að leggja sig fram við að standa undir því trausti sem vaxandi fjöldi sjóðfélaga sýnir Landsbréfum.

Landsbréf hafa um árabil verið í fararbroddi á Íslandi sem leiðandi sjóðastýringarfyrirtæki. Félagið rekur fjölbreytt úrval verðbréfasjóða og sérhæfðra sjóða auk þess sem félagið sinnir afmörkuðum eignastýringarverkefnum fyrir lífeyrissjóði og fleiri stærri fjárfesta.“

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur