Landsbankinn breytir vöxtum
Í kjölfar vaxtaákvörðunar hækka meðal annars breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum um 0,50 prósentustig og verða 8,00%. Vextir á sparireikningum sem stofnaðir eru í appinu (Spara í appi) hækka um 0,50 prósentustig og verða 6,00%.
Útlánavextir
- Breytilegir vextir á óverðtryggðum íbúðalánum hækka um 0,50 prósentustig og verða 8,00%.
- Fastir vextir nýrra óverðtryggðra íbúðalána hækka um 0,25-0,30 prósentustig.
- Vextir verðtryggðra íbúðalána eru óbreyttir.
- Kjörvextir á óverðtryggðum lánum og yfirdráttarlánum hækka um 0,50 prósentustig.
- Verðtryggðir kjörvextir eru óbreyttir.
Innlánavextir
- Vextir á óverðtryggðum sparireikningum hækka um 0,50 prósentustig.
- Viðskiptavinir fá 6,00% vexti þegar þeir spara í appinu.
- Vextir á Fasteignagrunni verða 6,65%.
- Vextir á Kjörbók og vextir almennra sparireikninga hækka um 0,25 prósentustig.
- Vextir á verðtryggðum sparireikningum eru óbreyttir.
Ákvörðun um ofangreindar breytingar er tekin í kjölfar vaxtaákvörðunar Seðlabanka Íslands frá 8. febrúar 2023 en þá hækkaði Seðlabankinn vexti um 0,50 prósentustig. Vaxtabreytingarnar taka einnig mið af vöxtum á markaði og öðrum fjármögnunarkjörum Landsbankans.
Ný vaxtatafla tekur gildi mánudaginn 20. febrúar 2023. Breytingar á vöxtum á lánum sem falla undir lög um neytendalán eða lög um fasteignalán til neytenda taka þó gildi í samræmi við tilkynningar þar að lútandi sem sendar verða viðskiptavinum í netbanka.
Hver eru áhrifin á lánið mitt?
Við vekjum athygli á fræðslugrein á vef bankans þar sem fjallað er um áhrif vaxtahækkana á lán. Ef lán (neytendalán eða fasteignalán til neytenda) er með breytilega vexti taka breytingarnar gildi 30 dögum eftir að tilkynnt er um breytinguna. Vextir lána með fasta vexti breytast ekki á meðan á fastvaxtatímanum stendur.