Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Til­boði tek­ið í Aust­ur­stræti 11 og hús bank­ans í Hafn­ar­stræti

Austurstræti 11
25. júlí 2025

Landsbankinn hefur tekið tilboði Landsbyggðar ehf. í Landsbankahúsið við Austurstræti 11 og Hafnarstræti 10, 12 og 14.

Húsin voru auglýst til sölu 15. maí sl. Tvö tilboð bárust og var tilboð Landsbyggðar metið hagstæðara, að teknu tilliti til tilboðsskilmála og núvirðis á greiðslum. Söluverð húsanna er 2,85 milljarðar króna. 

Landsbyggð er fasteigna- og þróunarfélag sem sérhæfir sig í uppbyggingar- og umbreytingarverkefnum um allt land og hefur meðal annars staðið að uppbyggingunni í miðbæ Selfoss, í gegnum dótturfélagið Sigtún Þróunarfélag ehf.

Lilja Björk Einarsdóttir, bankastjóri Landsbankans, segir: 

„Austurstræti 11 er eitt glæsilegasta hús landsins og reyndist bankanum afar vel. Salan markar tímamót því nú hefur bankinn selt öll Landsbankahúsin, sem voru teiknuð af eða byggðu á teikningum Guðjóns Samúelssonar, en líkt og átti við um hin húsin hentaði Austurstræti 11 ekki lengur starfsemi bankans. Það er mikilvægt fyrir miðborgina að húsið fái nýtt hlutverk og það verður áhugavert að fylgjast með hvernig byggingarnar verða nýttar og svæðið glætt nýju lífi.“  

Guðjón Auðunsson, stjórnarformaður Landsbyggðar, segir: 

„Landsbyggð horfir til þess að þróa húsin með virðingu fyrir sögu þeirra og staðsetningu með það að markmiði að þau verði lifandi hluti af borginni á ný. Markmiðið er að efla mannlíf í hjarta borgarinnar. Húsin og staðsetningin bjóða upp á ótal möguleika sem ríma vel við þá hugsun sem liggur að baki okkar verkefnum – að vinna með sögu og staðaranda og búa til nýja og skemmtilega áfangastaði.“  

Reist árið 1898 og endurbyggt 1924 

Húsin sem um ræðir eru samtals 5.836 fermetrar að stærð, þar af 1.380 fermetrar í kjallara. Austurstræti 11 var reist árið 1898 og endurbyggt árið 1924 eftir teikningum Guðjóns Samúelssonar, húsameistara ríkisins. Guðjón hannaði einnig innréttingar hússins. Húsið var friðað árið 1991, bæði að utan sem og innviðir eins og vegglistaverk og upprunalegar innréttingar. Viðbygging við húsið var tekin í notkun árið 1940. Samtengt húsinu er Hafnarstræti 10–12, svonefnt Edinborgarhús frá árinu 1923, auk Hafnarstrætis 14 sem var reist árið 1970. Landsbankinn flutti starfsemi sína úr Kvosinni árið 2023, úr samtals 12 húsum, í nýtt húsnæði við Reykjastræti 6.

Þú gætir einnig haft áhuga á
Austurbakki
7. júlí 2026
Landsbankinn til ráðgjafar í 3,4 milljarða útboði Coripharma
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var íslenska lyfjafyrirtækinu Coripharma til ráðgjafar og hafði umsjón með sölu skuldabréfa í félaginu á dögunum og nam fjármögnunin alls 3,4 ma.kr.
Nicetravel
7. júlí 2026
Landsbankinn ráðgjafi við sölu á Nicetravel
Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans annaðist ráðgjöf við sölu á öllu hlutafé í Nicetravel ehf., einu af leiðandi fyrirtækjum landsins á sviði skipulagðra hópferða fyrir erlenda ferðamenn. Það var hópur íslenskra fjárfesta sem festi kaup á félaginu.
Austurbakki
1. júlí 2026
Landsbankinn hefur afhent hlut sinn í Greiðslumiðlun Íslands 
Þann 23. október sl. var tilkynnt um að Landsbankinn hf., Bál ehf. og Solvent ehf. hefðu undirritað kaupsamning um sölu á öllu hlutafé í Greiðslumiðlun Íslands ehf. (GMÍ) til Símans hf. Viðskiptin voru háð hefðbundnum fyrirvara um samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þann 28. maí sl. tilkynnti Samkeppniseftirlitið að stofnunin hefði lokið rannsókn á kaupunum og teldi ekki tilefni til frekari rannsóknar eða íhlutunar. 
Austurbakki
23. júní 2026
Landsbankinn uppfærir persónuverndaryfirlýsingu
Landsbankinn hefur endurskoðað og uppfært persónuverndaryfirlýsingu sína. Með uppfærslunni hefur heiti skjalsins verið breytt úr persónuverndarstefnu í persónuverndaryfirlýsingu. Yfirlýsingin er aðgengileg á vef bankans og hvetjum við viðskiptavini til að kynna sér efni hennar.
22. júní 2026
Það borgar sig að skoða sendandann
Mikið er um netsvikatilraunir þessa dagana og mikilvægt að hafa varann á. Við höfum birt nýja grein á Umræðunni þar sem sérfræðingur bankans fer yfir helstu leiðir til að verjast svikatilraunum. Einnig höfum við gefið út leik sem miðar að því að læra að þekkja helstu klækina sem netglæpamenn nota.
19. júní 2026
Laufey Rún Ketilsdóttir ráðin til Landsbankans
Laufey Rún Ketilsdóttir hefur verið ráðin sérfræðingur í samskiptum og miðlun hjá nýrri deild Landsbankans, Upplýsingamiðlun. Deildin gegnir lykilhlutverki í að efla samræmda og stefnumiðaða upplýsingamiðlun bankans.
Loftmynd af Reykjastræti og umhverfi
11. júní 2026
Reykjastræti 6 fyrst til að hljóta frábæra fullnaðarvottun
Hönnun Reykjastrætis 6 hlaut BREEAM-vottun strax sumarið 2023 og nú hafa framkvæmd byggingar og frágangur lokið sömu vottun. Báðir verkþættir hlutu einkunnina frábært (e. excellent) sem er næsthæsta þrep BREEAM-vottunarkerfisins. Er bygging bankans fyrsta framkvæmdin á Íslandi til að hljóta fullnaðarvottun með þeirri einkunn samkvæmt nýjum staðli frá 2016.
Netsvik
9. júní 2026
Við vörum við svikatölvupóstum
Við vörum við svikatölvupóstum sem hafa borist viðskiptavinum í nafni Landsbankans. Svikapósturinn ber titilinn „Yfirlit Landsbankinn“ og er viðtakandi hvattur til að yfirfara skráðar upplýsingar um sig hjá bankanum innan sjö daga. Tilgangur póstsins er að komast yfir banka- og kortaupplýsingar viðskiptavina.
Austurbakki
5. júní 2026
Rarik sækir 10 milljarða króna í fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins
Rarik ohf. lauk miðvikudaginn 3. júní 2026 útboði á nýjum grænum skuldabréfaflokki, RARIK 100633 GB, þar sem tilboðum að heildarfjárhæð 10 milljarðar króna var tekið. Um er að ræða fyrstu grænu skuldabréfaútgáfu félagsins undir grænni fjármögnunarumgjörð þess.
5. júní 2026
Enn tími til að sækja um styrk úr Gleðigöngupotti
Gleðigöngupotturinn er samstarfsverkefni Hinsegin daga og Landsbankans sem hefur verið stoltur styrktaraðili hátíðarinnar frá upphafi.