Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur
Fréttir

Sam­ið um nýtt hús­næði fyr­ir Lands­bank­ann og TM á Sel­fossi

Austurvegur 11, Selfossi
26. ágúst 2025

Landsbankinn og TM á Selfossi munu flytja sig yfir í nýtt hús við Austurveg 11 á Selfossi fyrir árslok 2027, samkvæmt langtímaleigusamningi sem gerður hefur verið við Fossver ehf.

Um er að ræða hús sem mun rísa við Austurveg 11 þar sem verslun Karls R. Guðmundssonar hefur verið til húsa.

Útibúið á Selfossi er eitt af stærstu útibúum bankans og þar vinna 18 manns. Afgreiðslur Landsbankans í Reykholti og í Þorlákshöfn heyra einnig undir útibúið og er heildarfjöldi starfsfólks bankans í Árnessýslu því 22.

Landsbankinn seldi Landsbankahúsið á Selfossi við Austurveg 20 árið 2020. Húsið, sem var gert eftir grunnteikningum Guðjóns Samúelsson, er um 1.200 fermetrar.

Frá sölu hefur starfsemi bankans farið fram á jarðhæð hússins og verður hún áfram þar fram að flutningum.

Nýja húsnæðið verður um 440 fermetrar að stærð en til samanburðar fer starfsemi bankans á Selfossi nú fram á 660 fermetrum.

Þú gætir einnig haft áhuga á
19. okt. 2026
Vel sóttur fræðslufundur um hlutabréf
Fræðslufundurinn Hlutabréf með Landsbankanum – frá forvitni til fjárfestinga fór fram fyrir fullu húsi í Landsbankanum í Reykjastræti 15. október.
14. okt. 2026
Lögreglan varar við fölsuðum skilríkjum ungmenna
Landsbankinn vill vekja athygli viðskiptavina á rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu sem leiddi í ljós að yfir 300 ungmenni hafi notað VPN-stillingu (e. VPN profile) fyrir iPhone sem nefnist „Island Surge VPN“.
Hús í Reykjavík
13. okt. 2026
Aftur opið fyrir umsóknir um séreignarsparnað inn á húsnæðislán
Skatturinn hefur á ný opnað umsóknir um að ráðstafa viðbótarlífeyrissparnaði skattfrjálst inn á húsnæðislán. Með úrræðinu getur þú nýtt bæði eigið framlag og mótframlag launagreiðanda til að greiða niður lánið þitt. Sótt er um á þjónustuvef Skattsins.
Landsbankinn í Reykjastræti
2. okt. 2026
Landsbankinn ráðgjafi Styrkás við kaup á Malbikstöðinni
Styrkás hf. hefur undirritað samning um kaup á öllu hlutafé Malbikstöðvarinnar ehf. og lóðum félagsins á Esjumelum. Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans var ráðgjafi Styrkás í viðskiptunum.
29. sept. 2026
Opið fyrir umsóknir um samfélagsstyrki
Á hverju ári veitum við samfélagsstyrki úr Samfélagssjóði Landsbankans og nemur upphæðin samtals 20 milljónum króna.
10. sept. 2026
Tveir fengu úthlutað úr Hvatasjóði Landsbankans
Háskólanemarnir Salvador Di Marzio Láruson og Oliwia Slodowska hljóta í ár styrk úr Hvatasjóði Landsbankans til grunnnáms við Háskólann í Reykjavík skólaárið 2027-2028.