Fréttir

Þú færð 5,25% vexti með því að spara í app­inu

13. október 2022 - Landsbankinn

Við bjóðum nú 5,25% innlánsvexti ef þú sparar í Landsbankaappinu. Sparnaðurinn er óbundinn og þú getur nálgast peningana þína hvar og hvenær sem er.

Þegar þú sparar í appi stofnast óverðtryggður reikningur með engan binditíma. Reikningurinn er fyrir einstaklinga og eingöngu er hægt að stofna hann í appinu og á L.is.

Með því að spara í appinu okkar færðu nú 5,25% vexti sem eru hagstæðustu vextirnir sem eru í boði á óbundnum innlánsreikningum hjá okkur. 

Þú hefur val um fjórar leiðir til að leggja inn á sparnaðinn. Þú getur millifært inn á reikninginn hvenær sem þú vilt. Þú getur líka ákveðið að millifæra ákveðna upphæð í hverjum mánuði, sparað hlutfall af launum eða látið ákveðna upphæð af hverri debetkortafærslu renna í sparnaðinn.

Þú færð hærri vexti ef þú sparar í appinu

Þú gætir einnig haft áhuga á
Netbanki
19. júlí 2024
Upplýsingar vegna kerfisbilunar
Engar truflanir eru lengur á þjónustu bankans. Í nótt og í morgun voru truflanir á ýmsum þjónustuþáttum sem tengdust bilun sem haft hefur áhrif á fyrirtæki víða um heim.
15. júlí 2024
Níu atriði fengu úthlutun úr Gleðigöngupottinum
Dómnefnd Gleðigöngupotts Hinsegin daga og Landsbankans hefur úthlutað styrkjum til níu atriða í Gleðigöngunni.
Stúlka með síma
12. júlí 2024
Enn einfaldara að byrja að nota Landsbankaappið
Nýskráning í Landsbankaappið hefur aldrei verið einfaldari og nú geta allir prófað appið án nokkurra skuldbindinga. Með þessu opnum við enn frekar fyrir aðgang að þjónustu Landsbankans.
Menningarnótt 2023
9. júlí 2024
24 verkefni fá úthlutað úr Menningarnæturpottinum
Í ár fá 24 spennandi verkefni styrki úr Menningarnæturpotti Landsbankans og Reykjavíkurborgar. Verkefnin miða meðal annars að því að færa borgarbúum myndlist, tónlist og fjölbreytta listgjörninga, bæði innan- og utandyra.
Austurbakki
5. júlí 2024
Fyrirtækjaráðgjöf verður ráðgjafi fjármálaráðuneytisins vegna sölu á eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka
Fjármála- og efnahagsráðuneytið hefur ráðið Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans sem sjálfstæðan fjármálaráðgjafa við skipulagningu og yfirumsjón á fyrirhuguðu markaðssettu útboði eða útboðum á eftirstandandi eignarhluta ríkisins í Íslandsbanka hf.
Björn A. Ólafsson
4. júlí 2024
Björn Auðunn Ólafsson til liðs við Landsbankann
Björn Auðunn Ólafsson hefur gengið til liðs við Fyrirtækjaráðgjöf Landsbankans og hefur hann þegar hafið störf.
Landsbankinn.pl
3. júlí 2024
Meiri upplýsingar á pólsku á landsbankinn.pl
Við höfum bætt við pólskri útgáfu af Landsbankavefnum, til viðbótar við íslenska og enska útgáfu. Á pólska vefnum eru upplýsingar um appið okkar, greiðslukort, gengi gjaldmiðla, viðbótarlífeyrissparnað, rafræn skilríki, Auðkennisappið og fleira.
2. júlí 2024
Enn meira öryggi í Landsbankaappinu
Við höfum bætt stillingarmöguleikum við Landsbankaappið sem auka enn frekar öryggi í korta- og bankaviðskiptum. Nú getur þú með einföldum hætti lokað fyrir tiltekna notkun á greiðslukortum í appinu og síðan opnað fyrir þær aftur þegar þér hentar. Ef þörf krefur getur þú valið neyðarlokun og þá er lokað fyrir öll kortin þín og aðgang að appi og netbanka.
Arinbjörn Ólafsson og Theódór Ragnar Gíslason
20. júní 2024
Landsbankinn og Defend Iceland vinna saman að netöryggi
Landsbankinn og netöryggisfyrirtækið Defend Iceland hafa gert samning um aðgang að hugbúnaði villuveiðigáttar fyrirtækisins til að auka og styrkja varnir gegn árásum á net- og tölvukerfi Landsbankans.
14. júní 2024
Hægt að nota Auðkennisappið við innskráningu
Við vekjum athygli á að hægt er að nota Auðkennisappið til að skrá sig inn og til auðkenningar í netbankanum og Landsbankaappinu og innan tíðar verður einnig hægt að framkvæma fullgildar rafrænar undirritanir. Það hentar einkum þegar þú ert í netsambandi en ekki í símasambandi eða ert með erlent farsímanúmer.
Vefkökur

Með því að smella á „Leyfa allar“ samþykkir þú notkun á vefkökum til þess að auka virkni vefsins, greina vefnotkun og aðstoða við markaðssetningu.

Nánar um vefkökur